Besta byrjun KR-inga síðan þeir urðu síðast Íslandsmeistarar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júní 2019 12:30 KR-ingar hafa unnið fimm leiki í röð og sitja á toppi Pepsi Max-deildinni. vísir/bára
KR-ingar hafa ekki byrjað jafn vel á Íslandsmóti síðan þeir urðu Íslandsmeistarar fyrir sex árum síðan. KR komst á topp Pepsi Max-deildar karla með 3-2 sigri á Íslandsmeisturum Vals á Meistaravöllum í gær. KR-ingar lentu 0-2 undir en komu til baka og unnu góðan sigur. Eftir níu umferðir er KR með 20 stig, einu stigi meira en Breiðablik. ÍA er með 16 stig í 3. sætinu en á leik til góða á bæði KR og Breiðablik. KR hefur ekki farið jafn vel af stað í efstu deild síðan 2013, þegar liðið varð Íslandsmeistari í 26. sinn. Það er jafnframt síðasti Íslandsmeistaratitill félagsins í fótbolta karla. Fyrir sex árum unnu KR-ingar átta af fyrstu níu leikjum sínum og gerðu eitt jafntefli og voru með fimm stiga forskot á toppnum. Líkt og nú var Rúnar Kristinsson við stjórnvölinn hjá KR. Hann gerði KR-inga að Íslandsmeisturum 2011 og 2013 og bikarmeisturum 2011, 2012 og 2014. Eftir hafa þjálfað Lilleström og Lokeren sneri Rúnar aftur heim í KR haustið 2017. KR var bara með fimm stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar í sumar en hefur unnið síðustu fimm leiki sína. Í næstu umferð Pepsi Max-deildarinnar fara KR-ingar í Kaplakrika og mæta þar FH-ingum. Í 11. umferðinni fær KR svo Breiðablik í heimsókn. Mörkin úr leik KR og Vals í gær má sjá hér fyrir neðan.
Pepsi Max-deild karla Reykjavík Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Valur 3-2 │ Mögnuð endurkoma KR KR á toppinn. 19. júní 2019 22:00 Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Valur 3-2 │ Mögnuð endurkoma KR KR á toppinn. 19. júní 2019 22:00