„Of miklar tilfinningar“ hjá Sarri sem sendi Zola í viðtölin eftir jafnteflið gegn Burnley Anton Ingi Leifsson skrifar 22. apríl 2019 21:48 Zola og Sarri í látunum í leikslok. vísir/getty
Það var enginn Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, sem mætti í viðtöl eftir að Chelsea gerði 2-2 jafntefli við Burnley í enska boltanum í kvöld. Sarri var vísað upp í stúku af dómara leiksins, Kevin Friend, undir lok leiksins eftir að hafa farið langt út fyrir boðvanginn, þar sem þjálfarar eiga að halda sig. Gianfranco Zola, aðstoðarþjálfari Chelsea, mætti í viðtölin eftir leikinn og sagði hann að það væru of miklar tilfinningar hjá Sarri til þess að hann myndi mæta í viðtöl. „Við vorum ósáttir. Það voru of miklar tafir. Fimm mínútur í uppbótartíma var ekki nóg. Við vorum að vonast eftir einhverju meira,“ sagði Zola við BBC í leikslok. „Við bjuggumst við erfiðum leik en ekki svona miklum töfum. Við bjuggumst við að dómarinn myndi gefa meiri tíma í uppbótartíma og það er ástæðan fyrir því að við erum ósáttir.“ „Sarri var mjög ósáttur því hann heyrði ekki góða hluti um sig frá bekknum hjá Burnley. Eina ástæðan fyrir því að hann labbaði þarna yfir var til þess að fá leikmenn í sínar stöður.“ „Hann var að hjálpa dómaranum. Kevin rangtúlkaði þetta og ég er mjög ósáttur með þetta því Sarri vildi hjálpa honum,“ sagði ósáttur Zola.
Fótbolti Tengdar fréttir Chelsea missteig sig gegn Burnley Chelsea tapaði stigum Burnley sem nánast tryggði sér sæti í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. 22. apríl 2019 20:45 Mest lesið Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi Íslenski boltinn Haukur mikilvægari en Gidsel Handbolti Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Enski boltinn „Við réðum ekkert við þá“ Íslenski boltinn Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Fótbolti Viktor Bjarki dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Íslenski boltinn „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Sjá meira
Chelsea missteig sig gegn Burnley Chelsea tapaði stigum Burnley sem nánast tryggði sér sæti í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. 22. apríl 2019 20:45