Dómarar þurfi sjálfir að biðja um leyfi frá störfum á launum Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 1. apríl 2019 07:45 Í pallborði um Landsréttarmálið voru Stefán A. Svensson lögmaður og dómararnir Benedikt Bogason og Davíð Þór Björgvinsson. Fundinum stýrði Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélagsins. Fréttablaðið/Ernir
Dómararnir fjórir sem sinna ekki dómstörfum að sinni vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu verða ekki settir í launað leyfi nema þeir óski eftir því sjálfir. Þetta kom fram í máli Benedikts Bogasonar hæstaréttardómara og formanns Dómstólasýslunnar í málstofu á Lagadeginum á föstudaginn. Í pallborðsumræðum á fundinum var spurt hvers vegna dómararnir væru ekki settir í leyfi og nýir settir tímabundið í þeirra stað, eins og heimilt er samkvæmt dómstólalögum. Benedikt varð fyrir svörum og sagði hugmyndina hafa komið til tals en til að dómari fari í launað leyfi þurfi viðkomandi að biðja um það sjálfur. „Þessu hefur verið hreyft en slík beiðni hefur bara ekki komið fram. Þess vegna lagði Dómstólasýslan til að það væri farið í að breyta lögum og fjölga dómurum við réttinn,“ sagði Benedikt. Hann lagði áherslu á það í erindi sínu að stjórnvöld bregðist fljótt við áður en fyrirsjáanlegur málahali myndist í Landsrétti með tilheyrandi drætti á meðferð mála. Í erindi sínu í málstofunni fór varaforseti dómsins, Davíð Þór Björgvinsson, yfir þær leiðir sem hann telur færar til að bregðast við dómi MDE. Í fyrsta lagi væri mögulegt að staðfesta skipun dómaranna fimmtán með lögum frá Alþingi. Davíð sagðist telja þessa leið lögfræðilega færa en ef til vill erfiða pólitískt. Í öðru lagi megi endurtaka feril skipunarinnar þannig að sett yrðu lög sem mæli fyrir um að ráðherra taki við sama dómnefndarálitinu að nýju, skili tillögu aftur til Alþingis og önnur atkvæðagreiðsla fari fram í þinginu. Í þriðja lagi væri unnt að auglýsa fjórar dómarastöður til viðbótar, þannig að dómarar við réttinn verði alls 19 en fækki smám saman niður í 15 á grundvelli sólarlagsákvæðis sem sett yrði í lögin. Benedikt sagði í sínu erindi að mikilvægast væri að lausn yrði fundin sem hentaði dómskerfinu. „Það hentar ekki dómskerfinu að setja fram tillögur sem verða að einhverju pólitísku bitbeini,“ sagði Benedikt og bætti við: „Því miður þótti mér sumar tillögur Davíðs hérna áðan því marki brenndar að ég hef verulegar efasemdir um að þær fullnægi þeim áskilnaði.“ Benedikt sagði að þótt hagsmunir einstaklinga væru vissulega undir í málinu yrðu ákvarðanir um framtíðarlausn að miða að hagsmunum dómskerfisins. Hann sagði mjög miður að ekki hefði tekist að efla traust á dómskerfinu með innleiðingu millidómstigsins en ferlið hefði falið í sér mikilvægt tækifæri til þess. Skipunarmálin hefðu hins vegar haft mjög slæm áhrif og hefði það komið fram í mælingum á trausti almennings til dómskerfisins. Dómararnir fjórir sem um ræðir eru enn að störfum í Landsrétti, fyrir utan Ragnheiði Bragadóttur, sem farin var í námsleyfi þegar dómur MDE féll. Fréttablaðið beindi fyrirspurn til Landsréttar um hvað umræddir dómarar hefðust að í vinnunni. Í svari Björns Bergssonar, skrifstofustjóra réttarins, segir: „Vegna þeirrar óvissu sem er enn uppi um það hvernig við verður brugðist af hálfu stjórnvalda hafa þeim ekki verið falin einhver tiltekin varanleg verkefni til að annast. Til þessa hafa þau eftir atvikum sinnt tilfallandi verkum. Fyrr en línur skýrast eru ekki forsendur af hálfu dómsins til að taka frekar af skarið í þessum efnum.“ Ekki er ljóst hvaða verk, önnur en dómstörf, geta fallið til hjá dómstól sem skipaðir dómarar geta unnið.
Birtist í Fréttablaðinu Dómstólar Landsréttarmálið Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira