Matthías: Ég var staðráðinn í það að sýna hvað ég er í raun og veru Árni Jóhannsson skrifar 29. mars 2019 22:27 Matthías Orri Sigurðarson. vísir/bára „
Vá hvað þetta var geggjað. Það breytir svo miklu þegar þú hefur gaman að því að spila körfubolta. Það var gaman að vera á vellinum og þá leggur maður sig mikið meira fram og það lyftist allt saman upp og allir koma með. Þetta var bara frábært kvöld í Breiðholtinu.“ Þetta sagði besti maður vallarins í leik ÍR og Njarðvíkur í kvöld, hann Matthías Orri Sigurðarson þegar hann var spurður að því hvort honum hafi fundist þetta jafn geggjuð frammistaða hjá ÍR og blaðamanni. Hann skoraði ekki stig í þriðja leiknum sem fram fór í Ljónagryfjunni á miðvikudaginn síðasta en sallaði niður 23 stigum í kvöld. Var hann spurður út í hvað hafi breyst á milli leikja hjá honum persónulega. „Ég var kominn í einhverja gryfju eftir þennan leik, þriðja leikinn í röð þar sem mér finnst ég ekki vera að standa mig en ég set mikla ábyrgð á sjálfan mig að standa mig vel. Bæði fyrir mig sjálfan og fyrir liðið mitt. Ég fór bara og skoðaði aðeins leikina og leit á þetta sem nýja áskorun, ég hef aldrei ekki skorað stig í körfuboltaleik áður og þetta var bara nýr leikur fyrir mig.“ „Ég á svo bara rosalega góða að sem hjálpuðu mér því þetta var pínu erfitt en ég var staðráðinn í það að sýna hvað ég er í raun og veru og hvað ég geri þegar það gengur illa. Ekki bara fyrir sjálfan mig heldur fyrir liðið mitt. Liðið var fyrst og fremst frábært í kvöld. Alveg sama hvað ég gerði þá var það liðið sem var frábært í kvöld.“ Matthís var svo að lokum spurður að því við hverju við ættum að búast á sunnudaginn í Ljónagryfjunni. „Látum. Gleði vonandi aftur, jöfnum leik og sigurkörfu sitt hvorum megin myndi ég halda fljótt á litið. Við erum ógeðslega spenntir fyrir þessu, það er ekkert betra en oddaleikur og það er gaman að vera í Njarðvík. Þetta er lítill völlur og mikil læti. Við getum bara ekki beðið eftir þessu.“
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: ÍR - Njarðvík 87-79 | Oddaleikur í Ljónagryfjunni á sunnudag ÍR kafsigldi Njarðvíkinga og eiga fyllilega skilið að fara í oddaleik. 29. mars 2019 22:45 Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Enski boltinn Yfirlýsing Ármanns vegna brottvísunar Arnars Péturs: Hann stytti sér leið Sport Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Fleiri fréttir Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Sjá meira
Leik lokið: ÍR - Njarðvík 87-79 | Oddaleikur í Ljónagryfjunni á sunnudag ÍR kafsigldi Njarðvíkinga og eiga fyllilega skilið að fara í oddaleik. 29. mars 2019 22:45