Með hvítt hár í sígildum jakkafötum Brynhildur Björnsdóttir skrifar 1. mars 2019 10:30 Kristján Thor Waage með hvíta fermingarhárið og í fínu fermingarfötunum.
Tónlistarmaðurinn Kristján Thor Waage hefur getið sér gott orð fyrir teknótónlist en fyrsta platan hans, W, sem kom út árið 2017 fékk afbragðsgóðar viðtökur og sat á toppi Juno spilunarlistans í tvo mánuði. Önnur plata er á leiðinni og kemur hún út í mars. Færri vita að tónlistarferill Kristjáns hófst eins og margra ungra tónlistarsnillinga samtímans, í tölvunni sem hann keypti fyrir fermingarpeningana sína. Kristján fermdist árið 2006 í Ábæjarkirkju. „Ég man nú ekkert sérstaklega margt frá þessum degi. Í kirkjunni var ég með hvítt hár þannig að ég stóð mikið út úr og svo var ég mjög tanaður sem mér fannst mjög kúl þá.“ Hann segir veisluna hafa verið frekar hefðbundna. „Hún var í sal rétt hjá Laugardalshöllinni, fólk mætti og fékk kökur og kaffi og heilsaði upp á mig. Ég man ekki eftir að hafa fengið að ráða miklu í þessu ferli, man bara að það var mikið af veitingum og að mér fannst þær góðar enda þekkja foreldrar mínir mig alveg og vissu hvað ég fílaði. Þetta er annars ekkert mjög merkilegur dagur fyrir mér í minningunni,“ segir Kristján. Hann segir trúna hafa skipt máli þegar hann ákvað að fermast. „Á þessum tíma var ég kannski ekki beint trúaður en samt ekki heldur vantrúaður, meira svona forvitinn um þetta allt saman. Í dag er ég alveg vantrúaður og ef ég ætti tímavél mundi ég fara til baka og fermast borgaralega. Ég sé samt ekkert eftir því að hafa fermst í kirkjunni, það var mjög fallegt.“ Fermingarfötin voru líka fyrstu jakkafötin. „Ég var í blárri skyrtu og fínum jakkafötum og það fáránlega við þetta er að ég kemst ennþá í þau í dag, þrettán árum síðar. Ég nota þau þegar ég er að fara fínt út að borða eða eitthvað. Þau eru fín og fara mér vel og ég sé enga ástæðu til að nota þau ekki.“Waage að störfum við tónlistargerð í fermingarjakkafötunum sem hann passar ennþá í.Fermingargjafirnar eru öllum fermingarbörnum minnisstæðar. „Ég fékk PSP leikjatölvu frá bróður mínum og svo voru þetta aðallega bara peningar,“ segir Kristján. „Ég held að flestir krakkar kaupi sér eitthvert tæknidót fyrir fermingarpeningana og ég var engin undantekning og keypti mér borðtölvu.“ Og tölvan sú hefur komið að góðum notum. „Fyrst var ég bara í leikjum í henni en bróðir minn sýndi mér fljótlega tónlistarforrit sem ég byrjaði að fikta mig áfram með og fljótlega var ég farinn að semja tónlist.“ Kristján sendir frá sér sína aðra plötu um þessar mundir. „Platan heitir W í öðru veldi en ég sem undir nafninu Waage,“ segir hann. Tónlistinni hefur verið lýst sem taktfastri, flæðandi en þó dansvænni og þessi plata er eins konar framhald af fyrstu plötunni, W, sem kom út 2017. „Ég er auðvitað mjög spenntur fyrir útgáfunni og fyrir útgáfupartíinu sem verður 16. mars á Bravó.“ Og framtíðin er björt. „ Planið er að vera hamingjusamur og líða vel og partur af því er að gefa út tónlistina mína, spila meira úti og gefa út fleiri plötur.“
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Þjóðkirkjan Mest lesið George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Menning Sérstök og sjaldgæf íslensk nöfn: „Vitanlega var mér strítt“ Lífið Dansandi bræður slá í gegn á stóra sviðinu Lífið „Konan hans hlýtur að taka á honum þegar hún heyrir þetta“ Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Fann engin önnur ráð en „að ganga í söfnuð Votta Jehóva“ Lífið Safaríkur kjúklingaréttur sem slær alltaf í gegn Lífið Einbýlishús í Garðabænum eftir miklar framkvæmdir Lífið „Það er smá búið að ljúga að okkur sem er reyndar ekki í fyrsta skipti“ Lífið Smart og stílíseruð í Sigvaldablokk Lífið Fleiri fréttir Dansandi bræður slá í gegn á stóra sviðinu Safaríkur kjúklingaréttur sem slær alltaf í gegn Smart og stílíseruð í Sigvaldablokk Stórstjörnur í snjóbrettasenunni fögnuðu Fann engin önnur ráð en „að ganga í söfnuð Votta Jehóva“ Einbýlishús í Garðabænum eftir miklar framkvæmdir Sérstök og sjaldgæf íslensk nöfn: „Vitanlega var mér strítt“ „Konan hans hlýtur að taka á honum þegar hún heyrir þetta“ Slær á sögusagnirnar með lúmskum skilaboðum Eins og sebrahestur umkringdur ljónum Sjáðu nýtt og stærðarinnar veitingasvæði í Smáralind Löggunni ekki boðið en mætti tvisvar til Jenner Binni ætlaði að sjóða kartöflur í hraðsuðukatli Ein besta knattspyrnukona landsins frátekin Leikkonan Sally Kirkland er látin Jana Steingríms og Lilja Ketils héldu bleikt partý Úrslitin réðust í lokaspurningu um mislukkaðan uppfinningamann Gulli áttaði sig skyndilega á því að hann væri í miðjum Heimsóknarþætti Fellaskóli vann Skrekk Innlit: Hlýlegt heimili í sögulegri viðbyggingu í Vesturbænum Fersk og bragðgóð Chimichurri-kryddblanda Kim féll Gleðilegan feðradag: „Við verðum fjögur í apríl“ Umhverfisráðherra á von á barni GDRN og Árni Steinn eiga von á sínu öðru barni Stjörnulífið: Uniqlo á Suðurlandi Stór hluti fólks „aumingjar og haugar“ Hefur engan kynferðislegan áhuga á óléttri konu sinni Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Krakkatían: Skrímslasveitin, söngleikur og framhaldsmynd Sjá meira