Leikmaður í Domino´s deild karla dæmdur í bann í annarri deild Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2019 17:00 Reiðikast Keflvíkingsins Gunnars Ólafssonar kostar hann ekki leik. Vísir/Bára
Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands tók fyrir mál tveggja leikmanna í Domino´s deild karla í vikunni. Annar þeirra slapp við bann. Jóhann Árni Ólafsson er leikmaður með karlaliði Grindavíkur í Domino´s deildinni en hann er einnig þjálfari kvennaliðsins og þar er hann á leiðinni í bann. „Jóhann Árni Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, skal nú sæta eins leiks bann vegna háttsemi sinnar í leik ÍR og Grindavíkur í Íslandsmóti 1. deild meistaraflokks kvenna, sem leikinn var 26. janúar 2019,“ segir í frétt á heimasíðu KKÍ. Grindavíkurliðið tapaði leiknum með tveimur stigum eftir tvíframlengdan leik. Gunnar Ólafsson, leikmaður Keflavíkur, sleppur hins vegar með áminningu þrátt fyrir að hafa verið rekinn út úr húsi í leik Stjörnunnar og Keflavíkur á dögunum. Gunnar missti algjörlega stjórn á sér og var sendur í sturtu. Þetta þýðir að bæði Gunnar Ólafsson og Jóhann Árni Ólafsson geta verið með sínum liðum í Domnino´s deild karla í kvöld. Gunnar Ólafsson og félagar í Keflavík taka þá á móti Skallagrími í Blue-höllinni á Sunnubraut en Jóhann Árni Ólafsson og félagar í Grindavík sækja Njarðvíkinga heim í Ljónagryfjuna. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15 og það gera einnig leikir Þórs og Breiðabliks í Þorlákshöfn og leikur Hauka og KR á Ásvöllum. Stöð 2 Sport sýnir leik Njarðvíkur og Grindavíkur beint frá Ljónagryfjunni og hefst útsendingin klukkan 19.05.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira