Læknaslagur á Facebook um veipur og rafrettur Jakob Bjarnar skrifar 21. janúar 2019 15:03 Lækna-Tómas og Guðmundur Karl kljást um rafrettur eða veipur. Þar eru þeir læknar heldur betur á öndverðum meiði.
Tómas Guðbjartsson læknir og útivistarmaður, ritaði stuttan pistil á Facebooksíðu sína um helgina sem vakið hefur mikla athygli. Þar fjallar Tómas um hið mikla hitamál sem eru rafsígarettur eða veipur, eftir því hvoru megin átaklínunnar menn vilja skipa sér. Tómas áttar sig fyllilega á því að hann er að hætta sér út á sannkallað jarðsprengjusvæði: „Ég ætla að hætta mér inn í umræðuna um rafsígarettur - með mynd sem ég tók í sjoppu í Mosfellsbæ. Þessar umbúðir segja allt um aðferðafræðina við markaðssetningu rafrettna og markhópinn, enda notar nú fjórðungur framhaldsskólanema rafrettur daglega. Er það í lagi?“ spyr Tómas.Litadýrðinni ætlað að glepja ungmennin Og læknirinn heldur áfram: „Hversu mörg af þessum ungmennum munu ánetjast nikótíni og byrja að reykja síðar á ævinni? Ég veit að margir hafa náð að hætta að reykja með rafrettum - sem er jákvætt - en það réttlætir ekki svona markaðssetningu. Og ekki segja mér að sú ánægjulega staðreynd að aðeins 4% framhaldsskólanema reyki sígarettur daglega sé vegna rafrettna. Sú jákvæða þróun hófst áður en rafrettur tröllriðu markaðnum.“Glussi á gufuvélina í öllum regnbogans litum. Tómas telur litadýrðina einkum hugsaða til að höfð til ungmenna.Tómas GuðbjartssonEða, er það svo? Ekki að mati þess manns sem helst hefur látið þetta til sín taka opinberlega. Hann telur Tómas vaða villu og svíma; koma af fjöllum með sína nálgun á þetta fyrirbæri. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um Guðmund Karl Snæbjörnsson lækni, óþreytandi baráttumann fyrir veipunni sem hann vill kalla svo. Guðmundur Karl bendir á að rök Tómasar hvað varðar litadýrð á umbúðum, að slík höfði einkum til ungmenna, standist varla. Því vissulega séu litir notaðir í umbúðir á allt mögulegt sem einnig er ætlað fullorðnum. Og það sé einfaldlega bannað lögum samkvæmt að selja börnum og unglingum undir 18 ára aldri veipglussa á gufuvélarnar. Það hafi hins vegar ekki stoppað ungmenni í því að komast yfir tóbak.Minnkandi reykingar má þakka veipunni Guðmundur Karl svarar Tómasi ítarlega og fer í pistil hans lið fyrir lið. En, kjarni málsins er að þá greinir á um hvað veldur því að reykingar hafa dregist saman; Guðmundur Karl segir engum blöðum um það að fletta að þar eigi veipan stærstan þátt.Guðmundur Karl nefnir ýmsar rannsóknir máli sínu til stuðnings.Og líklegt megi telja að þó rétt sé að mörg ungmenni veipi, þá væru einmitt þau ungmenni að fikta við reykingar ef ekki væri fyrir rafrettuna. Guðmundur Karl segir að „tískufyrirbærið“ veip hafi yfirtekið alla tóbaksnotkun. „Súmmerað upp: þeir unglingar sem veipa voru 65% að reykja áður og stærstur hluti þeirra TIL VIÐBÓTAR eru þeir sem voru/eru að nota munntóbak líka! Hve stór er þá hópur þeirra sem höfðu aldrei notað tóbak (reykt og reyklaust) áður? Spurðu Rannsóknir og Greiningu að því. Áhugaverð tala það örugglega. Í erlendumrannsóknum, Bretlandi og USA, er sá fjöldi nefnilega hverfandi lítill, eða langt undir 1% krakkanna. Hóparnir sem um ræðir voru 82.000 börn sem rannsóknir þessar náðu yfir!“
Áfengi og tóbak Heilbrigðismál Rafrettur Tengdar fréttir Prófessor telur rafrettur góða tóbaksvörn Vinda þarf ofan af frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafsígarettur að mati Halldóru Mogensen formanns velferðarnefndar Alþingis. Linda Bauld prófessor við Stirling háskóla í Bretlandi kom fyrir nefndina í morgun og ráðlagði nefndarfólki að grípa tækifærið og nýta rafrettur til tóbaksvarna. 23. apríl 2018 19:30 Hjúkrunarfræðingar vilja herða tökin á rafrettum Segja að þær séu næsti bær við sígarettur. 20. mars 2018 15:21 Reykingar hvergi minni en á Íslandi Níu prósent eða 22 þúsund Íslendinga reykja. Slíkar tölur hafa ekki sést fyrr. 2. mars 2018 10:17 Segir Svandísi styrkja stöðu sígarettunnar Ólafur Stephensen telur einsýnt að ný reglugerð muni kæfa rafrettubransann. 21. september 2018 13:38 Læknar vilja rafrettur úr sölu Læknafélag Íslands skorar á yfirvöld að stöðva tafarlaust sölu á rafrettum, eftir því fyrirkomulagi sem nú er, ella sé árangri Íslands á heimsmælikvarða í minnkun reykinga barna stefnt í hættu 13. nóvember 2018 07:30 Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Sjá meira
Prófessor telur rafrettur góða tóbaksvörn Vinda þarf ofan af frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafsígarettur að mati Halldóru Mogensen formanns velferðarnefndar Alþingis. Linda Bauld prófessor við Stirling háskóla í Bretlandi kom fyrir nefndina í morgun og ráðlagði nefndarfólki að grípa tækifærið og nýta rafrettur til tóbaksvarna. 23. apríl 2018 19:30
Hjúkrunarfræðingar vilja herða tökin á rafrettum Segja að þær séu næsti bær við sígarettur. 20. mars 2018 15:21
Reykingar hvergi minni en á Íslandi Níu prósent eða 22 þúsund Íslendinga reykja. Slíkar tölur hafa ekki sést fyrr. 2. mars 2018 10:17
Segir Svandísi styrkja stöðu sígarettunnar Ólafur Stephensen telur einsýnt að ný reglugerð muni kæfa rafrettubransann. 21. september 2018 13:38
Læknar vilja rafrettur úr sölu Læknafélag Íslands skorar á yfirvöld að stöðva tafarlaust sölu á rafrettum, eftir því fyrirkomulagi sem nú er, ella sé árangri Íslands á heimsmælikvarða í minnkun reykinga barna stefnt í hættu 13. nóvember 2018 07:30