Fundu barnið sem óttast var að hefði verið rænt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. janúar 2019 14:52 Úr Hisingen hverfinu í Gautaborg. Wikicommons
Sex mánaða gamalt barn sem óttast var að hefði verið rænt fyrir utan leikskóla í Gautaborg í Svíþjóð er fundið heilt á húfi. Lögregla blés til mikillar leitar en óttast var að barninu hefði verið rænt. Það mun hins vegar hafa fundist í hverfinu og er við hestaheilsu. SVT greinir frá. Kona um fertugt hefur verið handtekin grunuð um aðild að málinu. Móðir barnsins sagðist hafa skilið sex mánaða gamla dóttur sína eftir í barnavagni fyrir utan leikskóla í Hisingen-hverfinu í Gautaborg. Móðirin skrapp inn til að sækja annað barn sitt og þegar hún kom aftur út var barnið horfið. Talsmaður lögreglu sagði konuna hafa verið inni í leikskólanum í fimm til tíu mínútur. Þegar hún kom út var barnavagninn horfinn og barnið líka. Viðamikil leit hófst að barninu. Auk lögreglu komu leitarhundar, björgunarsveitir og þyrlur að leit. Þá voru leigubílstjórar látnir vita og sömuleiðis starfsmenn almenningssamgangna. Lögregla var látin vita af því að barnið væri horfið um hálftíma eftir að móðirin kom út af leikskólanum. Þau höfðu sjálf leitað í hálftíma áður en þau ákváðu að láta lögreglu vita.Fréttin hefur verið uppfærð.
Svíþjóð Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Innlent Fleiri fréttir Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Sjá meira