Norðmenn gerðu sitt og Króatar spila um fimmta sætið Anton Ingi Leifsson skrifar 23. janúar 2019 18:45 Sander Sagosen í baráttunni í kvöld. vísir/getty
Norðmenn hafa gert sitt til að komast í undanúrslitin á HM í handbolta og Króatar urðu fyrsta liðið til þess að hafa betur gegn ríkjandi heimsmeisturum, Frakklandi. Norðmenn unnu níu marka sigur á Ungverjum í Boxen-höllinni í Herning, 36-25, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir er liðin gengu til búningsherbergja, 16-13. Noregur þurfti að vinna leikinn og þurfa nú að treysta á að Danmörk vinni Kristján Andrésson og lærisveina í Svíþjóð til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitunum en Svíþjóð og Danmörk mætast síðar í kvöld. Magnus Jondal var markahæstur Norðmanna með sjö mörk úr sjö skotum en línumaðurinn Bjarte Myrhol bætti við sex. Í liði Ungverja var Zsolt Balogh í sérflokki en hann skoraði ellefu mörk. Króatar munu spila um fimmta sætið eftir að hafa verið fyrsta liðið til þess að vinna Frakkland á þessu heimsmeistaramóti en Króatar höfðu betur, 22-20, er liðin mættust í Köln í kvöld. Frakkarnir voru fyrir leikinn komnir í undanúrslitin og dreifðu álaginu vel en Króatar spila um fimmta sætið í mótinu við annað hvort Svíþjóð eða Noreg. Það skýrist síðar í kvöld. Melvyn Richardson var markahæstur hjá Frakklandi með fimm mörk úr sínum fimm skotum en hornamaðurinn Zlatko Horvat var öflugur í liði Króata og skoraði sjö mörk.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Stórveldaslagur „upp á líf og dauða“ Íslenski boltinn Potter rekinn frá West Ham Enski boltinn Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Ársbann frá fótbolta fyrir skjalafals Fótbolti Dagskráin í dag: Ryder bikarinn, enski boltinn og baráttan í Bestu Sport „Held að skipið sé siglt að maður verði kallaður í landsliðið“ Íslenski boltinn Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira