Staffan „Faxi“ Olsson: Svíþjóð er ekkert með verra lið en Frakkar, Danir og Spánverjar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2019 16:00 Staffan "Faxi“ Olsson. Vísir/Getty
Staffan „Faxi“ Olsson hefur eins og fleiri mikla trú á Kristjáni Andréssyni og lærsveinum hans í sænska landsliðinu á HM í handbolta í ár. Olsson segir sænska landsliðið eiga möguleika á að verða heimsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu ár en þeir hafa ekki unnið síðan að Bengt Johansson þjálfaði liðið í lok síðustu aldar. Aftonbladet segir frá. Svíar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína á HM 2019 með samtals 36 mörkum eða tólf mörkum að meðaltali í leik. Sænska landsliðið hefur fengið á sig undir 20 mörk að meðaltali í leik í þessum þremur leikjum. Staffan Olsson er ein stóru goðsögnunum í sænskum handbolta enda hluti af gullaldarliði Svía á níunda og tíunda áratugnum. Staffan Olsson varð tvisvar sinnum heimsmeistari og fjórum sinnum Evrópumeistari með sænska landsliðinu og á alls tólf verðlaun frá stórmótum með Svíum. Olsson skoraði alls 855 mörk í 358 landsleikjum og mörg þeirra í leikjum á móti íslenska landsliðinu. „Eins og ég hef sagt áður þá tel ég að Svíar getið komið heim með heimsmeistaratitilinn. Svíþjóð er ekkert með verra lið en Frakkar, Danir og Spánverjar,“ sagði Staffan Olsson. Staffan Olsson þjálfaði sjálfur sænska landsliðið með Ola Lindgren frá 2008 til 2016. Besti árangur liðsins undir hans stjórn voru silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í London 2012. Sænska liðið fór þrisvar sinnum á heimsmeistaramótið í þjálfaratíð hans og besti árangurinn var fjórða sætið á heimamvelli 2011. Það er besti árangur Svía á HM síðan þeir fengu silfur á HM í Frakklandi 2001. Olsson var í 2001 liðinu.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti Dagskráin í dag: Ryder bikarinn, enski boltinn og baráttan í Bestu Sport Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira