Vann loksins stóra bróður sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2018 14:45 Stephen Curry og Seth Curry. GETTY/Ezra Shaw
Curry-bræðurnir eru báðir að spila í NBA-deildinni eins og faðir þeirra, Dell Curry, gerði í sextán ár. Eldri bróðirinn missti takið í nótt. Stephen Curry er 30 ára og á sínu tíunda tímabili en Seth Curry er 28 ára og á sínu sjötta tímabili. Bræðurnir mættust í nótt og þá gerðist það sem hafði aldrei gerst áður.For the first time in 7 career matchups, Seth Curry has beaten his older brother Stephen. The Trail Blazers have also won at Oracle for the first time in the Steve Kerr era. pic.twitter.com/qlkGkfPTOA — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) December 28, 2018Stephen Curry hefur verið stjarnan og hafði fagnað sigri í öllum innbyrðisleikjum bræðranna þar til í nótt. Stephen Curry hefur þrisvar sinnum unnið NBA-titilinn með Golden State Warriors og Seth Curry hefur spilað með sex félögum síðan að hann kom fyrst inn í deildina fyrir fimm árum. Núverandi lið Seth Curry er Portland Trail Blazers en hann hefur einnig spilað með Memphis Grizzlies, Cleveland Cavaliers, Phoenix Suns, Sacramento Kings og Dallas Mavericks. Hann fékk næstum því engin tækifæri með Grizzlies og Cavaliers en fyrsta alvöru tækifærið kom með Sacramento Kings tímabilið 2015-16. Sex sinnum höfðu þeir bræður mæst í leik í NBA-deildinni og alltaf vann Stephen Curry. Í nótt náði litli bróðir hinsvegar langþráðum sigri. Seth Curry og félagar í Portland Trail Blazers unnu þá 110-109 sigur á Golden State Warriors í framlengdum leik. Seth Curry spilaði í 18 mínútur í leiknum og var með 11 stig og þrjár þriggja stiga körfur. Hann hitti úr 3 af 5 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Stephen Curry var með 29 stig og 7 stoðsendingar á 42 mínútum en hann hitti úr 6 af 15 þriggja stiga skotum sínum og aðeins 1 af 3 vítum.
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Fleiri fréttir „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sjá meira