Kona særði fjórtán leikskólabörn í hnífaárás Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. október 2018 07:49 Chongqin-hérað er merkt með rauðu á kortinu. Skjáskot/Google Maps
Að minnsta kosti fjórtán börn eru særð eftir að kona réðst að þeim á leikskóla í Chongqing-héraði í suðvesturhluta Kína í morgun. Lögregla segir að konan sé þrjátíu og níu ára gömul og að hún hafi komið inn á skólalóðina vopnuð hnífi þegar börnin voru úti að leika. Ekki er ljóst hver ástæða árásarinnar er en kínverskir miðlar hafa þó ýjað að því að konan hafi staðið í einhvers konar deilum við stjórnvöld. Konan var handtekin á vettvangi. Í myndbandi sem deilt var á samfélagsmiðlum má sjá særð börn flutt á sjúkrabörum út úr skólanum. Sum þeirra virðast hafa hlotið stungusár í andlitið.#UPDATE Number of children stabbed by a woman in southwest China's Chongqing is 14, according to police https://t.co/zyYmhWKOak— CGTN (@CGTNOfficial) October 26, 2018 Þá hefur lögregla hafnað því að tvö börn hafi látist í árásinni en orðrómar þess efnis höfðu komist á kreik á samfélagsmiðlum. Ofbeldisglæpir eru tiltölulega fátíðir í Kína en hnífaárásir þar sem margir láta lífið eða særast hafa þó verið óvenju tíðar þar síðustu árin.
Kína Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Sjá meira