Á þriðja tug sagt upp hjá Icelandair Birgir Olgeirsson skrifar 27. september 2018 13:01 Íslensku flugfélögin hafa fundið fyrir harðnandi samkeppni og hækkun á olíuverði. Vísir/Vilhelm
Á þriðja tug hefur verið sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair í vikunni. Þetta staðfestir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi. Hann segir uppsagnirnar ná til starfsfólks á ýmsum sviðum og deildum starfsstöðva flugfélagsins í Reykjavík og Keflavík. Sagði hann þetta vera lið í hagræðingaraðgerðum sem félagið hefur gripið til að undanförnu, en félagið hefur farið í gegnum mikla erfiðleika á markaði sökum harðnandi samkeppni og hækkandi olíuverðs. Hann gat ekki sagt til um á hvaða sviðum og í hvaða deildum uppsagnirnar eru. Guðjón sagði þessa aðgerð flugfélagsins ekki teljast til hópuppsagnar, sem hefði þá þurft að tilkynna til Vinnumálastofnunar.Samkvæmt skilgreiningu stofnunarinnar telst það til hópuppsagnar ef að minnsta kosti 10 starfsmönnum er sagt upp í fyrirtækjum sem venjulega hafa fleiri en 20 og færri en 100 starfsmenn í vinnu, að minnsta kosti 10 prósent starfsmanna í fyrirtækjum sé sagt upp sem venjulega hafa hið minnsta 100 starfsmenn en færri en 300 í vinnu, og að minnsta kosti 30 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 300 starfsmenn eða fleiri í vinnu. Í ágúst síðastliðnum voru færðar fregnir af því að Icelandair ætli að færa hluta bak- og bókhaldsvinnslu fyrirtækisins til eistnesks dótturfélags. Þá hefur flugfélagið gert flugfreyjum og flugþjónum í hlutastarfi að þiggja fullt starf, ellegar verði samið um starfslok.
Icelandair Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira