Eyþór segir skuldasöfnun borgarinnar í tekjugóðæri óásættanlega Birgir Olgeirsson skrifar 30. ágúst 2018 16:18 Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Vísir/Vilhelm
Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu sex mánuði ársins var afgreiddur í borgarráði í dag en Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Reykjavíkur, segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum að þrátt fyrir að rekstur A hluta sé jákvæður um tæplega fjóra milljarða séu skuldir og skuldbindingar borgarsjóðs að aukast um 4 milljarða milli ára á síðustu 12 mánuðum. „Þar af aukast skammtímaskuldir um 3,4 milljarða. Þá minnkar handbært fé um 14,6 milljarða,“ er haft eftir Eyþóri. Þá bendir Eyþór á að skuldasöfnun borgarsjóðs í góðæri sé ekki sjálfbær og að þeirri þróun þurfi að snúa við. Hann segir að huga þurfi að lækkun skulda á meðan kostur er. „Það er auðvitað ekki ásættanlegt að í einu mesta tekjugóðæri Íslandssögunnar séu skuldir borgarinnar að aukast. Eðlilegast væri að greiða niður skuldir á meðan kostur er,“ er haft eftir Eyþóri í tilkynningunni. Jafnframt segir hann það vekja athygli að talin sé þörf á að hækka gjaldskrár Félagsbústaða. „Undanfarin átta ár hefur bókfærður hagnaður vegna endurmats eigna verið 38 milljarðar íslenskra króna. Það virðist hvorki skila sér inn á bankabók borgarinnar né til leigjenda Félagsbústaða," er haft eftir Eyþóri.
Tengdar fréttir Níu milljarða afgangur af rekstri borgarinnar Borgarstjóri segir niðurstöðuna til marks um sterkan resktur borgarsjóðs. 30. ágúst 2018 14:20 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira
Níu milljarða afgangur af rekstri borgarinnar Borgarstjóri segir niðurstöðuna til marks um sterkan resktur borgarsjóðs. 30. ágúst 2018 14:20