Greining á dóminum stendur yfir Birgir Olgeirsson skrifar 27. júlí 2018 15:26 Bubbi Morthens. Vísir
Verjandi Bubba Morthens segir það í skoðun hvort meiðyrðadómi, í máli Steinars Bergs Ísleifssonar gegn Bubba og RÚV, verði áfrýjað. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Bubba og RÚV til að greiða Steinari samtals 500 þúsund krónur vegna ummæla um útgáfusamninga hans og Steinars. Ummælin lét Bubbi falla í sjöunda þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar Popp- og rokksaga Íslands. Einnig voru ummæli sem Bubbi lét hafa eftir sér á vefmiðlum og Facebook dæmd dauð og ómerk. „Við erum bara að greina dóminn sem stendur,“ segir Hjördís Halldórsdóttir, verjandi Bubba í málinu. Ummælin vörðuðu samninga hljómsveitanna Utangarðsmanna og Egó, sem Bubbi var forsprakki í, við útgáfufyrirtæki Steinars Bergs snemma á níunda áratug síðustu aldar. Bubbi sagði í þættinum að meðlimir hljómsveitarinnar Egó, sem Bubbi stofnaði í upphafi níunda áratugarins, hafi farið flatt á viðskiptum sínum við útgáfufyrirtækið Steinar hf. Fyrirtækið hafi í raun grætt óeðlilega mikið á plötum hljómsveitarinnar. Vildi Bubbi meina að Steinar hefði nýtt sér bágt ástand hans, en Bubbi fullyrti fyrir dómi að hann hefði verið á kafi í eiturlyfjaneyslu á þessum tíma og fékk vin sinn og fyrrverandi eiginkonu til að staðfesta það við aðalmeðferð málsins.
Tengdar fréttir Fékk vin og fyrrverandi eiginkonu til að sanna stjórnlausa fíkniefnaneyslu á samningatímabilinu Bubbi Morthens þvertekur fyrir að hafa dróttað að broti gegn lögum með ummælum sínum um samninga hljómsveitanna Utangarðsmanna og Egó við útgáfufyrirtæki Steinars Bergs Ísleifssonar snemma á níunda áratugnum. 26. júlí 2018 19:32 Steinar Berg lagði Bubba og RÚV í meiðyrðamáli Þurfa að greiða Steinari 250 þúsund krónur í miskabætur. 26. júlí 2018 13:16 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira
Fékk vin og fyrrverandi eiginkonu til að sanna stjórnlausa fíkniefnaneyslu á samningatímabilinu Bubbi Morthens þvertekur fyrir að hafa dróttað að broti gegn lögum með ummælum sínum um samninga hljómsveitanna Utangarðsmanna og Egó við útgáfufyrirtæki Steinars Bergs Ísleifssonar snemma á níunda áratugnum. 26. júlí 2018 19:32
Steinar Berg lagði Bubba og RÚV í meiðyrðamáli Þurfa að greiða Steinari 250 þúsund krónur í miskabætur. 26. júlí 2018 13:16