Snör handtök afstýrðu stórtjóni á Keflavíkurflugvelli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. júní 2018 14:09 Flugeldhúsið er skammt frá flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Fréttablaðið/Andri Marinó. „
Ef að þetta hefði fengið að þróast í örfáar mínútur í viðbót hefði getað orðið gríðarlegt tjón,“ segir Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja um eld sem kom upp í þaki flugeldhúss IGS á Keflavíkurflugvelli í dag. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út vegna eldsins í morgun en slökkvilið naut einnig liðsinnis flugþjónustu Isavia við slökkvistarfið. „Þeir fóru á staðinn og þar kemur í ljós að það er eldur í þakinu en sem betur fer tókst að stoppa það áður en að það yrði eitthvað meiriháttar,“ segir Jón. Verið var að bræða tjörupappa á þakið þegar eldurinn braust út en framkvæmdir hafa staðið yfir á þaki hússins, sem staðsett er í grennd við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Ljóst er að snör handtök þeirra sem voru að starfi á þakinu, sem og slökkviliðsins hafi afstýrt stórtjóni, en greiðlega gekk að slökkva eldinn „Þetta var ekki orðinn mjög mikill eldur og þeir sem voru að vinna þarna voru nú búnir að sprauta á þetta með slökkvitækjum en það þarf ekki margar mínútur til þess að svona verði að stórbáli þannig að það tókst á skömmum tíma að stoppa þetta.“ segir Jón.
Tengdar fréttir Slökktu eld á Keflavíkurflugvelli Allt tiltækt lið slökkviliðs á Suðurnesjum var kallað út vegna elds í þaki flugeldhúss IGS á Keflavíkurflugvelli um klukkan ellefu í dag 18. júní 2018 11:36 Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Fleiri fréttir Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Sjá meira
Slökktu eld á Keflavíkurflugvelli Allt tiltækt lið slökkviliðs á Suðurnesjum var kallað út vegna elds í þaki flugeldhúss IGS á Keflavíkurflugvelli um klukkan ellefu í dag 18. júní 2018 11:36