Durant með 38 stig er meistararnir komust í 3-1 Anton Ingi Leifsson skrifar 6. maí 2018 23:15 Durant setur niður skot í leiknum í kvöld. Hann skoraði 38 stig. visir/getty
Golden State Warriors, ríkjandi meistarar í NBA-deildinni, eru komnir í 3-1 gegn New Orleans Pelicans í úrslitakeppninni þar í landi eftir stórsigur í fjórða leik liðanna í kvöld, 118-92. Ríkjandi meistararnir byrjuðu af miklum krafti og leiddu með fimmtán stigum eftir fyrsta leikhlutann, 37-22, en þeir slökuðu aðeins á í öðrum leikhluta. New Orleans gekk aðeins á lagið og þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 61-54. Þriðji leikhlutinn var rosalegur hjá Golden State sem keyrði yfir New Orleans. Liðið vann leikhlutann með fjórtán stiga mun, 33-19, svo eftirleikurinn var auðveldur í fjórða leikhlutanum. Golden State vann að lokum með 26 stiga mun, 118-92 og er því komið í 3-1 í einvíginu. Kevin Durant var algjörlega magnaður í liði Warriors. Hann skoraði 38 stig, tók níu fráköst og gaf fimm stoðsendingar en næstur kom Stephen Curry með 23 stig. Kevin Thompson bætti við þrettán stigum. Í liði New Orleans var Anthony Davis stigahæstur með 26 stig en hann tók að auki tólf fráköst. E’Twaun Moore bætti við 20 stigum.
NBA Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Breiðablik - Fortuna | Blikar sparka Evrópubikarnum af stað Fótbolti Fleiri fréttir Ísland - Serbía | Stelpurnar okkar stefna á EM Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ Sjá meira