Hester var „augljóslega ekki tilbúinn að spila“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. apríl 2018 21:26 Antonio Hester skoraði bara fjögur stig í kvöld vísir/bára
Tindastóll tapaði stórt fyrir KR í fyrsta leik í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta á Sauðárkróki í kvöld. Antonio Hester, einn besti leikmaður Stólanna, meiddist í leiknum í kvöld. Hester var tæpur á ökkla fyrir leikinn, en hann meiddist í síðasta leik gegn ÍR. Hann snéri sig svo á hinum ökklanum í leiknum í kvöld þegar hann reyndi að verja skot frá Brynjari Þór Björnssyni. „Þetta er hinn ökklinn. Ég veit ekki hver staðan á honum er, sjúkraþjálfarinn er að skoða hann. Það verður að koma í ljós hvort hann verði tilbúinn á sunnudaginn,“ sagði Israel Martin, þjálfari Tindastóls, í viðtali við Svala Björgvinsson eftir leikinn í kvöld. Hester átti augljóslega í vandræðum með ökklann í leiknum en Martin hélt áfram að skipta honum inn á í loka fjórðungnum. Hann sagði það hafa verið vegna þess að leikmaðurinn bað um að fá að koma aftur inn á, hann gæti spilað. „Hann var augljóslega ekki tilbúinn til þess að spila í kvöld.“ Leikur tvö í einvíginu fer fram í Vesturbænum á sunnudaginn og er mikið skarð fyrir skildi fyrir Tindastól ef Hester getur ekki verið með af fullum krafti í þeim leik en hann er með 21 stig og 8,7 fráköst að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Tindastóll - KR 54-75 | Íslandsmeistararnir stálu heimavellinum KR sótti sigur í fyrsta leik rimmunnar um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. 20. apríl 2018 22:30 Mest lesið Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Enski boltinn „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Golf „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Golf Sýna puttann til stuðnings Kane Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur enska bikarsins og risamót í golfi Sport Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Golf Fleiri fréttir Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Sjá meira
Leik lokið: Tindastóll - KR 54-75 | Íslandsmeistararnir stálu heimavellinum KR sótti sigur í fyrsta leik rimmunnar um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. 20. apríl 2018 22:30