Tapaði fyrir Blikum í lokaúrslitunum en tók síðan bara við þeim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2018 11:00 Pétur Ingvarsson Vísir/Anton
Péturs Ingvarsson verður næsti þjálfari Breiðabliks en Blikar unnu sér sæti í Domino´s deildinni á dögunum. Pétur þjálfaði Hamar í 1. deild karla í vetur og mætti einmitt Blikum í úrslitaeinvígi um laust sæti í Domino´s deildinni. Þar höfðu Blikar betur 3-1 og komust upp. Pétur hætti með Hamarsliðið eftir seríuna og í dag var tilkynnt að hann myndi taka við Blikaliðinu. „Pétur tekur við öflugu búi og mun áfram stuðla að þeirri uppbyggingu sem félagið hefur staðið fyrir síðustu ár. Breiðablik fagnar því að fá jafn reyndar þjálfara og Pétur til liðs við félagið og við bjóðum hann velkomin til starfa,“ segir í frétt á heimasíðu Blika. Breiðablik lét Lárus Jónsson fara fyrr í vetur og Chris Woods var spilandi þjálfari liðsins út leiktíðina. Woods kom Blikum upp en hann skoraði sjálfur 21,0 stig og tók 12,1 frákast að meðaltali í úrslitakeppninni. Péturs Ingvarsson hefur mikla reynslu af þjálfun í úrvalsdeild karla en hann hefur stýrt Hamar eða Hamar/Selfoss í 181 leik í efstu deild, Haukum í 27 leikjum og Skallagrími í 11 leikjum. Pétur var síðast þjálfari í Domino´s deildinni þegar hann var með lið Skallagrím veturinn 2014-15. Pétur fylgir þar með í fótspor bróðurs síns Jóns Arnars Ingvarssonar sem þjálfaði Blika í úrvalsdeildinni frá 2002 til 2004. Blikar eru núna komnir upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn í átta ár eða síðan 2009-10 tímabilið.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira