Litlu mátti muna að móðir með börn í bílnum fengi bíl framan á sig á Reykjanesbrautinni Birgir Olgeirsson skrifar 14. mars 2018 21:25 Þóra þurfti að víkja út í kant þegar ökumaður gáði ekki að sér við framúrakstur.
Þóra Kristín Hjaltadóttir, íbúi í Reykjanesbæ, birti í dag myndband sem sýnir gáleysislegan framúrakstur á Reykjanesbraut. Þóra var á leið frá Reykjavík til Reykjanesbæjar fyrr í dag með börnum sínum þegar atvikið átti sér stað. Þar hafði ökumaður tekið þá ákvörðun að taka fram úr bílum á brautinni en gáði ekki að umferð sem kom á móti. Þar á meðal var bíll Þóru en Þóra neyddist til að aka sínum bíl út í kant til að koma í veg fyrir að úr yrði alvarlegt slys. Þóra segir í samtali við Vísi að hún hefði hægt á myndbandinu svo það yrði greinilegra um hve mikinn háska akstur væri að ræða. Sjálf segist Þóra hafa verið á um 85 til 90 kílómetra hraða á klukkustund þegar atvikið átti sér stað. Hún segir að auk þess hafi bíll verið kyrrstæður út í kanti skammt frá þeim stað sem þetta átti sér stað, því hefði ekki mátt tæpar standa. Hún segist aka með myndavél í mælaborðinu öryggisins vegna, ef eitthvað komi upp á er hægt að horfa á upptöku af atvikinu til að fá úr því skorið hvað gerðist. Þóra segir öryggismál á Reykjanesbrautinni afar slæm og aðeins tímaspursmál hvenær alvarlegt slys muni eiga sér stað. Reykjanesbraut er tvöföld að hluta en Þóra hvetur stjórnvöld til að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar sem allra fyrst.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira