Stuðningsmenn Chelsea slösuðust fyrir utan Nývang í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2018 10:45 Lionel Messi skorar í leiknum í gær. Vísir/Getty
Chelsea hefur fengið formlega tilkynningu um atvik sem urðu fyrir utan Nývang í gærkvöldi þegar enska liðið mætti Barcelona í Meistaradeildinni. Barcelona vann leikinn 3-0 og þar með 4-1 samanlagt. Barcelona er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar en Chelsea er úr leik. Stuðningsmenn Chelsea slösuðust eftir samskipti sín við öryggisverði á leikvanginum. Myndbönd af átökunum komu fram á samfélagsmiðlum.Chelsea have been "made aware of incidents" outside Barcelona's Nou Camp stadium last night in which "a number of fans were hurt". More https://t.co/oJjCVxvmyqpic.twitter.com/bqsATZYZUi — BBC Sport (@BBCSport) March 15, 2018 Mossos d'Esquadra, lögreglan í Katalóníu, segist ekki hafa frétt af neinum atvikum þegar BBC leitaði eftir svörum þaðan. Chelsea hefur biðlað til stuðningsmanna sinna um að segja frá reynslu sinni af því sem gerðist fyrir utan Nývang. „Við vitum af fréttum af atburðum fyrir utan leikvanginn þar sem stuðningsfólk Chelsea slasaðist,“ segir í svari Chelsea til BBC. „Við biðjum okkar stuðningsfólk um að láta okkur vita af sinni reynslu af því þegar þau mættu á leikinn svo við getum farið rétta leið gagnvart yfirvöldum á staðnum,“ segir í fyrrnefndri yfirlýsingu frá Chelsea.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Fleiri fréttir Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Sjá meira