Ófögur sjón blasti við þriggja barna móður í Kópavogi í morgun Birgir Olgeirsson skrifar 23. febrúar 2018 11:08 Ég veit ekki hvað þetta morðingjamál er, segir móðirin í samtali við Vísi. Facebook
Ófögur sjón blasti við fjölskyldu í Kópavogi í morgun þegar orðið „Morðingi“ hafði verið spreyjað á annan af bílum hennar og á bílskúrshurð heimilis hennar. Auk þess hafði skemmdarvargurinn skorið á öll dekk á báðum bílum fjölskyldunnar og sér hún fram á tjón sem nemur að lágmarki um 150 þúsund krónum. „Þetta var ekki skemmtilegt,“ segir þriggja barna móðirin í Kópavogi, um þetta mál. Hún vildi ekki koma fram undir nafni í samtali við Vísi af ótta við frekari skemmdarverk. Hún segist hafa tilkynnt málið til lögreglu og segist hafa fengið þær upplýsingar þaðan að ekkert sambærilegt hafa átt sér stað í Kópavogi í vikunni. „Ég veit ekki hvað þetta morðingjamál er. Ég hef ekki drepið neitt stærra en kónguló. Hvorki ég né maðurinn minn. Við eigum enga óvini sem við vitum og ekki börnin okkar heldur. Við erum bara gjörsamleg orðlaus og skiljum ekki neitt í neinu,“ segir móðirin. Hún segist hafa verið að vinna til klukkan eitt í nótt og ætlaði sér út klukkan átta í morgun. Skemmdarverkið hafi því verið framið á þeim tíma milli þess sem hún kom heim í nótt og ætlaði út í morgun. Móðirin segir þau hafa náð mestu af málningunni af bílnum með hreinsiefni en hún haggast hins vegar ekki af bílskúrshurðinni. Hún segir tryggingafélagið ábyrgjast þetta tjón að hluta. Annar bíllinn er kaskótryggður en hinn ekki. „Við erum að sjá fram á tjón sem nemur alveg að lágmarki 150 þúsund krónum,“ segir móðirin. Hún bendir þeim sem gætu haft upplýsingar um þetta mál að hafa sambandi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira