Óvissustig við Súðavík vegna snjóflóðahættu Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. febrúar 2018 07:24 Ökumenn sem eiga leið til og frá Súðavík ættu að hafa varann á. VÍSIR/STEFÁN
Óvissustigi hefur verið lýst yfir við Súðavíkurhlíð í dag vegna snjóflóðahættu. Þrátt fyrir það er leiðin opin að sögn Vegagerðarinnar en rétt að ökumenn sem eiga leið um hlíðina hafi varann á.Mikil hætta er talin á snjóflóðum á norðanverðum Vestfjörðum þar sem hvassviðri hefur safnað snjó í háa skafla, hlémegin í landi og giljum. Veðurstofan hefur gert stöðugleikaprófanir á svæðinu sem gefið hafa mismunandi niðurstöður. Því þurfi að gera ráð fyrir að eldri snjór sé óstöðugur sumstaðar á þessum slóðum. Talið er að nýr snjór sem fellur í dag og á morgun geti einnig verið óstöðugur þar sem hann safnast í skafrenningi. Snjóflóð sem féll yfir veg í Bjarnadal í Önundarfirði í liðinni viku sýnir að stöðugleiki í eldri snjónum er ekki alls staðar góður að mati Veðurstofunnar. Færðin á öðrum vegum landsins er eftirfarandi:Á Suðvestur- og Suðurlandi er hálka og snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingur er á Kjósarskarðsvegi.Á Vesturlandi er snjóþekja og hálka víðast Ófært er út fyrir nes.Á Vestfjörðum er snjóþekja, hálka eða þæfingur og þungfært. Fjallvegir á sunnanverðum Vestfjörðum eru ófærir en unnið að mokstri. Nánari fréttir af færð á Vestfjörðum koma svo með morgninum.Á Norðurlandi er hálka, snjóþekja. Þungfært og skafrenningur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja og snjókoma. Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði. Ófært er á Vatnsskarði eystra. Hálka eða krapi er frá Egilsstöðum og með ströndinni að Vík.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Sjá meira