Olnbogaskot Elliott kært til aganefndar KKÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2018 11:00 Dominique Elliott. Vísir/Getty
Dominique Elliott, leikmaður karlaliðs Keflavíkur, hefur verið kærður til aga- og úrskurðanefndar KKÍ vegna framkomu sinnar í leik Keflavíkur og Þórs í Þorlákshöfn í Domino´s deild karla í körfubolta á föstudagskvöldið. Dominique Elliott gaf þá Þórsaranum Davíð Arnari Ágústssyni olnbogaskot án þess að dómaraþríeykið tæki eftir því. Dómaranefnd KKÍ skoðaði olnbogaskot Elliott og nú hefur verið tekin ákvörðun um að kæra það til aga- og úrskurðanefndar KKÍ. Guðbjörg Norðfjörð, formaður dómaranefndar KKÍ, staðfesti þetta við íþróttadeild. Í tvígang hefur það gerst á undanförnum árum að KKÍ hefur dæmt leikmann í bann út frá myndbandsupptöku og þetta verður væntanlega þriðja atvikið. David Sanders, þáverandi leikmaður Tindastóls, var dæmdur í sex leikja bann árið 2004 eftir að hafa slegið Sverri Þór Sverrisson, þáverandi leikmann Keflavíkur og núverandi þjálfara kvennaliðs Keflavíkur. Þá fékk Junior Hairston tveggja leikja bann þegar hann gaf Agli Egilssyni, leikmanni Skallagríms, olnbogaskot árið 2014. Dominique Elliott var þarna að spila sinn fimmta leik með Keflavíkurliðinu á tímabilinu en hann kom til liðsins um áramótin. Hann spilaði bara í rúmar 15 mínútur í leiknum en Keflavík mætti með annan bandaríska leikmann í Þorlákshöfn og spilaði Christian Dion Jones rúmar 24 mínútur í sínum fyrtsta leik. Keflavíkurliðið verður því ekki án bandarísks leikmanns þó svo að Dominique Elliott verði dæmdur í leikbann.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira