Þriggja leikja bann fyrir að gefa "Kóngnum“ olnbogaskot | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. febrúar 2018 16:03
Dominique Elliott, annar tveggja bandarískra leikmanna Keflavíkur í Domino´s-deild karla í körfubolta, var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann. Bannið fékk hann fyrir að gefa Davíð Arnari Ágústssyni, leikmanni Þórs Þorlákshafnar, olnbogaskot í 90-87 sigurleik Keflavíkurliðsins í viðureign liðanna síðastliðinn föstudag. Elliot komst upp með að gefa „Kóngnum“, eins og Davíð Arnar er kallaður, olnbogaskotið í leiknum sjálfum en aganefnd KKÍ skoðaði málið á myndbandsupptöku og dæmdi eftir því. Elliot kom til Keflavíkur um áramótin og er búinn að spila fimm leiki fyrir liðið. Hann er búinn að skora 17 stig, taka níu fráköst og gefa eina stoðsendingu að meðaltali í leik í þessum fimm leikjum. Hann skoraði níu stig og tók átta fráköst í umræddum leik á móti Þórsurum. Hann missir af leikjum Keflavíkur á móti Tindastóli annað kvöld og einnig leikjum liðsins gegn Hetti heima í 17. umferðinni og stórleik gegn KR á útivelli í 18. umferð Domino´s-deildarinnar. Keflavík er með 16 stig í 8. sæti deildarinnar.Allan dóminn má lesa hér.
Dominos-deild karla Mest lesið Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Körfubolti „Þórsarinn er svo geggjaður“ Handbolti Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Handbolti KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið Körfubolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport Fleiri fréttir KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ Sjá meira