Tóku fjóra bæi af YPG í Afrin Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. janúar 2018 07:00 Sýrlenskir uppreisnarmenn eru Tyrkjum til halds og trausts. vísir/afp
Tyrkneski herinn tók í gær bæina Shankal, Qorne, Bali og Adah Manli auk nokkurra dreifbýlissvæða í Afrin-héraði í norðvesturhluta Sýrlands. Frá þessu greindi Anadolu-fréttastofan í gær en Tyrkir réðust inn í Sýrland á sunnudag eftir hrinu loftárása. Aðgerðir Tyrklandshers beinast gegn YPG, her Kúrda, en Tyrkir vilja meina að um sé að ræða hernaðararm Verkamannaflokks Kúrda (PKK). Sá flokkur hefur í um þrjá áratugi verið útlægur frá Tyrklandi og álitinn hryðjuverkasamtök meðal annars af Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. YPG hefur neitað því alfarið að vera hernaðararmur PKK og er aðili að hernaðarbandalaginu gegn ISIS, rétt eins og Tyrkir og sveitir sýrlenskra uppreisnarmanna sem nú aðstoða Tyrki í aðgerðunum gegn Kúrdum. Þrátt fyrir aðild sína að hernaðarbandalaginu hafa Tyrkir ítrekað fordæmt stuðning Bandaríkjamanna við YPG. Samkvæmt bresku samtökunum Syrian Observatory for Human Rights náði YPG að brjóta Tyrki á bak aftur í tveimur bæjum. Þá hefur YPG greint frá því að tekist hafi að verjast Tyrkjum með sprengjuárásum nærri landamærum Tyrklands og Sýrlands.
Birtist í Fréttablaðinu Sýrland Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira