Réðst á foreldra sína Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. janúar 2018 06:13 Árásin átti sér stað í Hlíðahverfi í Reykjavík. Vísir/vilhelm
Ungur maður í annarlegu ástandi réðst á foreldra sína á heimili þeirra í Hlíðahverfi Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Í dagbók lögreglunnar er hann jafnframt sagður hafa ógnað þeim með eggvopni áður en hann var handtekinn á vettvangi. Maðurinn var fluttur í fangageymslu þar sem hann hefur fengið að sofa úr sér og má gera ráð fyrir því að hann verði yfirheyrður síðar í dag. Lögreglan fékk að sama skapi þrjár tilkynningar um innbrot og þjófnaði í nótt. Fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá innbrotafaraldri á höfuðborgarsvæðinu og því rétt að fara að öllu með gát. Í gærkvöldi og nótt var brotist inn í heimahús í Grafarvogi þar sem stolið var verðmætum, í gistiheimili í Kópavogi voru lyklar teknir ófrjálsri hendi (að hverju fylgir ekki sögunni) og þá var einnig brotist inn í fyrirtæki í Súðarvogi. Þar var búið að róta og skemma innanstokksmuni en ekki er vitað að svo stöddu hvort og þá hverju var stolið. Þá voru fimm ökumenn stöðvaðaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna, sem og einn ofurölvi karlmaður sem hafði verið vísað úr strætisvagn í Hamraborg fyrir að drekka áfengi í vagninum. Hann hefur fengið að sofa úr sér í fangageymslu í nótt.
Lögreglumál Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent Píratar kjósa formann í lok mánaðar Innlent Fleiri fréttir Píratar kjósa formann í lok mánaðar Reyndi að flýja lögreglu en endaði uppi á kanti Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Mikil hætta skapist sé ekið á nýsteypta brúna Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Þyrstir fagna komu jólabjórsins til byggða Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Bjargey meðferðarheimili: „Þetta var eins og lúxusneyslurými“ Sjá meira