Fluttu 2,8 milljónir farþega á síðasta ári Daníel Freyr Birkisson skrifar 10. janúar 2018 11:09 Er gert ráð fyrir að um 3,7 milljónir farþega muni ferðast með WOW air árið 2018. Vísir/Vilhelm
Árið 2017 flutti WOW air rúmlega 2,8 milljónir farþega en það er 69 prósent fjölgun farþega frá árinu áður. Sætanýting WOW air árið 2017 var 88 prósent sem er sú sama og árið 2016. Þá flutti félagið 214 þúsund farþega til og frá landinu í desember eða um 23 prósent fleiri farþega en í desember árið 2016. Sætanýting í desember var 88 prósent en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 86 prósent. Í tilkynningu frá félaginu segir að flugflotinn verði 24 þotur í lok árs 2018 en félagið mun taka á móti sjö glænýjum þotum á árinu, þar af þremur innan örfárra mánaða. Tvær Airbus A321ceo, ein Airbus A321neo og fjórar breiðþotur Airbus A330-300neo en WOW air verður annað flugfélagið í heiminum til að taka á móti slíkum breiðþotum. Þá segir að þessar þotur séu næsta kynslóð Airbus A330 breiðþotna og eru þær sparneytnari en sambærirlegar breiðþotur annarra framleiðenda þökk sé meðal annars nýjum vængbúnaði sem hámarkar loftstreymisnýtni. Haft er eftir Skúla Mogensen, forstjóra WOW air, að félagið hafi aldrei verið betur í stakk búið að ráða við áframhaldandi vöxt og er gert ráð fyrir að um 3,7 milljónir farþega muni ferðast með þeim árið 2018. Á árinu mun WOW air bæta við sig áætlunarflugi til Detroit, Cleveland, Cincinnati, St.Louis og Dallas. Félagið mun þá fljúga til 15 áfangastaða í Norður-Ameríku.
Fréttir af flugi WOW Air Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira