Stígur til hliðar vegna ásakana um kynferðislega áreitni Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. janúar 2018 23:05 Trond Giske hefur átt sæti á norska þinginu frá 1997. Vísir/EPA
Trond Giske, varaformaður norska Verkamannaflokksins, hefur stigið tímabundið til hliðar eftir að hann var sakaður um að hafa áreitt stjórnmálakonu í ungliðahreyfingu flokksins kynferðislega. „Í ljósi aðstæðna fyrir flokkinn, og eðli málsins, höfum við Trond Giske komist að samkomulagi um að hann verði tímabundið leystur frá störfum sem varaformaður,“ sagði formaður Verkamannaflokksins, Jonas Gahr Stoere, í yfirlýsingu í dag. Verkamannaflokkurinn mun funda um brottrekstur Giske á morgun. Sjá einnig: Sakaður um að hafa áreitt ungliða kynferðislega Giske, sem hefur verið í veikindaleyfi síðan ásakanirnar litu dagsins ljós í lok desember, tjáði sig jafnframt sjálfur um málið á Facebook-síðu sinni í dag. Þar sagðist hann vona að með því að stíga til hliðar gæti hann svarað almennilega fyrir ásakanirnar, sem hann sagði að hluta til ekki á rökum reistar. Þá ítrekaði Giske í færslunni að hann harmi hegðun sína. Verkamannaflokkurinn er stærsti flokkurinn á norska þinginu en er í stjórnarandstöðu. Hann hlaut 27,4 prósent fylgi í þingkosningunum í haust. Giske hefur átt sæti á norska þinginu frá 1997. Hann hefur á ferli sínum gegnt embætti ráðherra kirkju- og menntamála, menningarmála og viðskipta- og iðnaðarmála.
Noregur MeToo Tengdar fréttir Sakaður um að hafa áreitt ungliða kynferðislega Trond Giske, varaformaður norska Verkamannaflokksins, hefur verið sakaður um að hafa áreitt stjórnmálakonu í ungliðahreyfingu flokksins kynferðislega. 22. desember 2017 10:39 Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Fleiri fréttir Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Sjá meira
Sakaður um að hafa áreitt ungliða kynferðislega Trond Giske, varaformaður norska Verkamannaflokksins, hefur verið sakaður um að hafa áreitt stjórnmálakonu í ungliðahreyfingu flokksins kynferðislega. 22. desember 2017 10:39