Gunnhildur Yrsa spilar með félagi sem var stofnað fyrir aðeins nokkrum dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2018 17:35 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir. Vísir/Getty
Íslenska landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er orðinn leikmaður bandaríska félagsins Utah Royals FC en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Gunnhildur Yrsa var búin að segja frá því að hún myndi spila í Bandaríkjunum á næsta tímabili en gaf ekki upp með hvaða liði hún ætlaði að spila.#URFC sign Iceland international Gunnhildur “Gunny” Jonsdottir: https://t.co/MObsjfgL8epic.twitter.com/oDxcPKEh97 — Utah Royals FC (@UtahRoyals) January 3, 2018 Utah Royals FC er glænýtt félag en það var stofnað 1. desember 2017 eða fyrir aðeins nokkrum dögum síðan. „Gunny er leikmaður sem passar vel inn í NWSL deildina því hún hefur spilað landsleiki á stórmótum og í deildum í Evrópu. Reynsla hennar mun nýtast liðinu vel,“ sagði þjálfarinn Laura Harvey í viðtali á heimasíðu Utah Royals. „Eldmóður hennar inn á vellinum er smitandi og ég er mjög ánægður með að við náðum að ganga frá þessu,“ sagði Laura Harvey. Gunnhildur Yrsa er 29 ára gömul og lék síðast með Valerenga í Noregi en hún var fyrirliði liðsins sem komst í bikarúrslitaleikinn í haust. Hún skoraði 5 mörk í 21 leik. Gunnhildur Yrsa hefur skorað 7 mörk í 48 landsleikjum þar af þrjú mörk á síðasta ári. „Ég er bæði spennt og þakklát fyrir tækifærið að spila með Utah Royals FC. Ég hef heyrt svo margt gott um Lauru þjálfara og ég veit að ég mun læra mikið af henni,“ sagði Gunnhildur Yrsa í samtali við heimasíðu félagsins.
Fótbolti HM 2019 í Frakklandi Mest lesið „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Fótbolti Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Fótbolti María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Fótbolti Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Enski boltinn „Vont að vakna einn daginn og geta ekki gert það sem ég vil“ Sport Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Enski boltinn Liverpool-stjarna vill ekki spila fyrir ítalska landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona fór á bak við spænska sambandið og sendi Yamal í aðgerð FH-stelpurnar sáu um mörkin í sannfærandi sigri Íslands „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Liverpool-stjarna vill ekki spila fyrir ítalska landsliðið María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Gummi Ben fékk hláturskast ársins Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Ingibjörg fagnaði langþráðum sigri Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Rekinn úr starfi í annað sinn á þessu ári Maðurinn sem Liverpool leyfði að fara með eitt af mörkum ársins Yamal hefur þurft að þola tvöfalt meiri rasisma en Vinicius Messi um endurkomu til Barcelona: „Ég vona það einn daginn“ „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Stelpurnar okkar byrja á erfiðasta glugga sögunnar Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Sjá meira