Merkustu fornleifafundir nýliðins árs Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2018 09:30 Stórt og áður óþekkt holrúm fannst í Keopspíramídanum í Egyptalandi og þá fannst brak bandaríska herskipsins USS Indianapolis á 5,5 kílómetra dýpi í Kyrrahafi.
Mikið var um merka fornleifafundi á nýliðnu ári sem sýnir, svo ekki verði um villst, fram á að sífellt sé verið að endurskoða og endurskrifa mannkynssöguna. Graphic News og fleiri miðlar hafa tekið saman nokkra af merkustu fornleifafundum ársins 2017. Listinn að neðan er að sjálfsögðu á engan hátt tæmandi en þar má sjá nokkra af merkustu fornleifafundunum.Svíþjóð: Kvenkyns stríðsmaður frá víkingaöldFornleifafræðingar sem starfa í víkingaborginni Birka, vestur af sænsku höfuðborginni Stokkhólmi, hafa fundið sannanir fyrir því að stríðsmaður í gröf frá víkingatímanum hafi í raun verið kona. Var notast við lífsýni úr gröfinni til að sýna fram á þetta, en þetta er fyrsta sönnun þess að konur hafi einnig verið stríðsmenn á þessum tíma. Í gröf konunnar var að finna fjöldi vopna, leifar af tveimur hestum, hnefataflmenn og fleira sem bendir til að um háttsettan stríðsmann hafi verið að ræða.Marokkó: Elstu leifar af Homo sapiensElstu leifar sem fundist hafa af Homo sapiens fundust við fornleifauppgröft í Jebel Irhoud í Marokkó í ár. Steingervingarnir eru taldir vera rúmlega 300 þúsund ára – 100 þúsund árum eldri en elstu steingervingar af Homo sapiens sem áður höfðu fundist. Fundurinn gengur gegn fyrri kenningum um að Homo sapiens hafi þróast fyrir um 200 þúsund árum á svæði í austurhluta Afríku sem gengið hefur undir nafninu „vagga mannkyns“.Kyrrahaf: Herskip úr seinna stríðiLeitarmenn á vegum bandaríska auðjöfursins Paul Allen höfðu í ágúst uppi á bandaríska herskipinu USS Indianapolis sem var sökkt af Japönum í júlí 1945. Skipið fannst á 5,5 kílómetra dýpi á hafsvæði í kringum Filippseyjar. USS Indianapolis var á heimleið eftir að hafa siglt með varahluti sem síðar voru notaðir í kjarnorkusprengjunni sem varpað var á Hiroshima í ágúst 1945. Einungis 316 manns af 1.196 um borð lifðu árásina af og er þetta mannskæðasta árás sem bandaríski sjóherinn hefur orðið fyrir.Elsti sólmyrkvinnVísindamenn við Cambridge-háskóla í Bretlandi greindu frá því að sólmyrkvi hafi verið á jörðinni þann 30. október 1207 fyrir Krists burð. Þetta ku vera elsti sólmyrkvinn sem vitað er um, en þeir notuðust við forntexta og stjörnufræði til að komast að þessu.Mexíkó: Höfuðkúputurn AstekaFornleifafræðingar í Mexíkó fundu á árinu höfuðkúputurn frá tímum Asteka nálægt Templo Mayor í Tenochtitlan, sem var höfuðborg Asteka. Turninn samanstendur af rúmlega 650 höfuðkúpum sem hafði verið komið fyrir í kalksteini. Turnum sem þessum var ætlað að hræða Spánverja sem sigldu til vesturheims og náðu síðar borginni á sitt vald árið 1521.Ítalía: Elsta vatnsleiðsla heimsVerkamenn sem vinna að gerð nýrrar neðanjarðarlestarlínu í ítölsku höfuðborginni Róm fundu hluta af því sem talin er vera Aqua Appia, elstu vatnsleiðslu Rómarborgar. Framkvæmdir við vatnsleiðsluna hófust 312 fyrir Krist. Kafli leiðslunnar sem fannst í apríl er 332 metra langur og tveggja metra hár og fannst nálægt hringleikahúsinu Colosseum.Egyptaland: Holrúm í KeopspíramídanumFranskir og japanskir fornleifafræðingar greindu frá því í nóvember að þeir hafi fundið áður óþekkt holrúm í Keopspíramídanum í Egyptalandi. Telja fornleifafræðingarnir að holrúmið sé um þrjátíu metrar að lengd og nokkrir metrar á hæð. Er það að finna fyrir ofan stóra salinn innan í píramídanum. Fornleifafræðingarnir beittu svokallaðri mýeindatækni (e. muography) við rannsóknir sínar, en með henni má kanna þéttleika í stærri mannvirkjum úr steini. Keopspíramídinn var reistur í valdatíð Keops faraós, á árunum 2509 til 2483 fyrir Krist. Keopspíramídinn er 140 metrar á hæð og sá stærsti í Gíza, sem er að finna í útjaðri egypsku höfuðborgarinnar Kaíró.Kanada: Merki um forna búsetu á TriqueteyjuMargt er enn á huldu um búsetu manna í Norður-Ameríku til forna, en í ár fundu fornleifafræðingar merki um búsetu á eyjunni Triquet undan strönd Bresku Kólumbíu, á vesturströnd Kanada. Rannsóknirnar benda til að mikill fjöldi fólks hafi hafist þar við, en aldursgreining á kolum á eynni benda til búsetu þar fyrir um 14 þúsund árum.Suðurskautslandið: Ávaxtakaka ScottVísindamenn sem vinna við endurbætur á elstu byggingunni á Suðurskautslandinu, sem er að finna á Adarehöfða, fundu á árinu ávaxtaköku sem talin er að hafi verið skilin þar eftir af Robert Scott og leiðangursmönnum hans árið 1911. Kakan fannst í niðursuðudós, merkri Huntley & Palmers, og þótti lykt af kökunni og útlit hennar benda til að hún kynni að vera á jaðri þess að vera ætileg.
Fornminjar Fréttir ársins 2017 Suðurskautslandið Vísindi Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Sjá meira