Strákarnir enda magnað ár í 22. sæti heimslistans Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. desember 2017 09:35 Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, fagnar hér á Laugardalsvelli þegar Ísland tryggði sér farmiðann til Rússlands. vísir/ernir
Ísland endar magnað knattspyrnuár 2017 í 22. sæti styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, en síðasti listi ársins var gefinn út í morgun. Raunar er engin breyting á stöðu efstu 35 liða á listanum og stendur Ísland því í stað á milli lista. Strákarnir voru stóran hluta árs efsta Norðurlandaþjóðin á listanum en bæði Danir (12. sæti) og Svíar (18. sæti) tóku stórt stökk upp á við í lok ársins er báðar þjóðir tryggðu sig inn á HM í umspilinu í nóvember. Íslendingar voru þá búnir að tryggja sinna farseðil til Rússlands en það gerðu þeir með því að vinna sinn riðil í október. Heimsmeistarar Þýskalands eru í efsta sæti listans, á undan Brasilíu og Evrópumeisturum Portúgals. Argentína, sem Ísland verður með í riðli á HM í sumar, er svo í fjórða sætinu. Króatía er í 17. sæti og Nígería í 51. sæti en bæði lið eru sömuleiðis með Íslandi í riðli. Ísland náði best 19. sæti á heimslistanum á þessu ári og er það besti árangur liðsins frá upphafi. Strákarnir voru aldrei neðar en í 23. sæti á árinu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Enski boltinn Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum Fótbolti „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Dagskráin: Enski boltinn rúllar í DocZone Sport „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Tottenham - Burnley | Nýliðarnir hefja leik gegn Evrópudeildarmeisturunum Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Fáar spilað leik á þessum velli Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum „Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum „Maður er búinn að vera á nálum“ Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Sjá meira
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn