Völlurinn stóð af sér sprengingarnar - Myndband Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. desember 2017 07:24 Til stendur að endurskipuleggja allt svæðið. BBC
Þrátt fyrir heiðarlega tilraun niðurrifssérfræðinga í gær stendur Pontiac Silverdome-völlurinn í Detroit ennþá. Völlurinn, sem eitt sinn var heimavöllur ruðningsliðsins Detriot Lions, hefur lítið sem ekkert verið notaður síðastliðinn áratug. Borgaryfirvöld ákváðu því að réttast væri að jafna hann við jörðu og endurskipuleggja svæðið frá grunni. Ákveðið var að ráðast í verkið í gærkvöldi. Það tókst þó ekki betur en svo að völlurinn stendur enn - þrátt fyrir að allar sprengjurnar sem notaðar voru til verksins hafi sprungið eins og lagt var upp með. „Hann var einfaldlega of vel byggður á sínum tíma,“ grínaðist einn mannanna sem fenginn var til verksins í samtali við fjölmiðla ytra. Sérfræðingar eru handvissir um að stúkurnar muni hrynja. Hvenær það verður er þó erfiðara að segja til um. Því verður lítið aðhafst á næstunni á meðan þyngdaraflinu er leyft að spreyta sig á niðurrifinu. Myndband af tilraun gærdagsins má sjá hér að neðan.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira