Ólafía á botninum eftir tvo hringi Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. október 2017 07:30 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þarf að spila betur um helgina. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, átti dapran annan hring á Ken Hana-mótinu í Suður-Kóreu í nótt sem er hluti af LPGA-mótaröðinni. Ólafía spilaði á sjö höggum yfir pari en hún fékk átta skoll á móti einum fugli og var komin fjóra yfir par eftir fyrri níu holurnar. Hún spilaði á tveimur höggum yfir pari í gær og er því í heildina á níu höggum yfir pari eftir tvo hringi. Ólafía er í neðsta sæti af þeim sem eru enn skráðir til leiks en einn keppandi hætti leik. Enginn niðurskurður er á Keb Hana-mótinu og getur Ólafía því haldið áfram að spila um helgina en hún á mikið verk eftir óunnið ætli hún sér að komast upp listann á næstu tveimur tveimur dögum. Bandaríkjakonan Angel Yin er efst á ellefu höggum undir pari en á eftir henni koma fimm kylfingar frá Suður-Kóreu.
Golf Tengdar fréttir Ólafía tveimur yfir pari í Suður-Kóreu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf leik á Keb-Hana mótinu í nótt. 12. október 2017 07:30 Mest lesið Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Kominn með einkaleyfi á kaldasta fagnið í bransanum Enski boltinn Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Körfubolti Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Fótbolti Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Blikarnir taplausir á toppnum Körfubolti Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Fótbolti Fleiri fréttir Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira
Ólafía tveimur yfir pari í Suður-Kóreu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf leik á Keb-Hana mótinu í nótt. 12. október 2017 07:30