Græðgin sem hlífir engum Snæbjörn Brynjarsson og Þórólfur Júlían Dagsson skrifar 12. september 2017 15:26 Fyrir stuttu síðan gengu tveir fellibylir, Harvey og Irma yfir Bandaríkin og lögðu allt í rúst. Á Íslandi erum við það heppin að húsin okkar þola rok, en við höfum þó líka orðið fyrir barðinu á stormi. Hann heitir Græðgi. Á Íslandi fá veltengdir barnaníðingar uppreista æru, mengun frá kísilverksmiðju veldur íbúum Reykjanesbæjar heilsutjóni og nú brjóta stjórnvöld barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og henda stúlkum sem ekkert eiga út á guð og gaddinn. Þetta er allt í boði Sjálfstæðisflokksins. Líka hinna sjálfstæðisflokkanna tveggja sem í stað þess að hugsa um fólkið í landinu eru mest uppteknir af vinum sínum þegar þau valsa um þingsalinn í hálfrar milljón króna kjólum. Erlendir fjárfestar og landkaupendur eru boðnir velkomnir til að sölsa undir sig landið, og fá síðan að laumast út með arðinn til suðurhafseyja. En þegar fólk kemur úr erfiðum aðstæðum, á flótta undan hrikalegum stríðum, og vilja svo gjarnan setjast hér að, borga skatta og hlýða lögum þá er allt gert til að losa sig við það fólk. Það er ekki svona sem íslenska þjóðin vill hafa þetta. En svo lengi sem að hún hefur ekki leið til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum eða krefjast upplýsinga þá haga stjórnmálamenn sér svona. Barnaníðingar fá uppreista æru án fyrirhafnar á meðan fórnarlömb þeirra sitja eftir með sárt ennið og sár á sálinni. Heilsugæslan er lögð í rúst og heilbrigðiskerfið holað að innan. Allt fyrir vinina. Meira að segja sálin fær engin grið en geð-heilbrigðiskerfið fær ekki að taka við sjúklingum og er svo undirmannað að það getur ekki sinnt þeim sjúklingum sem það tekur við. Lífeyrisjóðirnir okkar eru tæmdir í glæfragælur sem virðast hafa verið úthugsaðar af fjárglæframönnum, við töpum sparnaði og vitleysingarnir keyra burt á sportbílum í boði íslenskra skattgreiðenda. Við sjáum líka hversu lítið eldri borgarar fá í lífeyri, það eru ekki miklir vasapeningar afgangs þegar fólk borgar hjúkrunarheimilis-tollinn. Þetta er allt gert til þess að efsta lagið í samfélaginu komist hjá því að deila. Það er fólkið með bankareikningana í Svissnesku ölpunum og aflandsfélög á suðurhafseyjum sem þau hafa aldrei heimsótt. Græðgi þessa fólks ógnar stöðugleika á Íslandi og dregur úr hagvexti. Við værum öll ríkari í sanngjarnara samfélagi, og hamingjusamari. Það hefur nefnilega sýnt sig að þegar óréttlæti ríkir í samfélaginu verða allir óhamingjusamari, en þegar jöfnuður er meiri eykst traust og ánægja. Við verðum að átta okkur á því peningar og græðgi gefa okkur ekkert ef við gleymum að sinna grunnstoðunum. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð eru ekki að uppfylla þær skyldur sem landsmenn eru að kalla eftir heldur viðhalda vantrausti og ranglæti. Hvað er til ráða fyrir Íslendinga? Einungis eitt. Að sýna kjark til þess að breyta stjórnarháttum hér á landi. En hvernig gerum við það? Það þarf ekki skyndiplástra eða ódýr loforð. Við þurfum fólk sem er annt um annað fólk, ber virðingu fyrir kjósendum. Fólk sem er ekki bara að plata þegar það lofar öldruðum öllu fögru, fólk sem meinar það þegar það lofar að efla heilbrigðiskerfið. Það er ófyrirgefanlegt þegar ömmur og afar hverfa frá fyrr en ella af því lyfin eru ekki þau nýjustu og bestu. Það er ömurlegt að fólk í háskólanámi hírist í kennslustofum sem mygla. Það er óréttlátt að við sem greiðum skattana uppskerum ekki það samfélag sem við eigum skilið. Við verðum að hætta að kjósa fólkið sem ekki getur skilað okkur þessu. Íslendingar vinna lengur og meira en aðrar norðurlandaþjóðir. Drifkraftur okkar og seigla er aðdáunarverð. Píratar vilja valdefla almenning með betra aðgengi að upplýsingum á mannamáli. En ekki bara viljum við láta fólk vita í hvað peningar þess eru að fara, við viljum að þau taki þátt í ákvörðuninni. Með nýrri stjórnarskrá gæti almenningur kallað eftir kosningum um einstaka mál, við vorum nógu skynsöm til að hafna Icesave, við getum alveg tekið ákvarðanir nýja spítala, um húsnæðismál ungs fólks og um margt, margt fleira. Áfram Ísland! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir Skoðun Mótórhjólasamtök á Íslandi – hvers vegna öll þessi læti? Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Mótórhjólasamtök á Íslandi – hvers vegna öll þessi læti? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson skrifar Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir skrifar Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar Skoðun Orðræða mótar menningu – og menningin mótar okkur öll Jóhanna Bárðardóttir skrifar Skoðun Eitt spilakort, betri spilamenning – er skaðaminnkandi Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Sameining sem eflir íslenskan landbúnað Egill Gautason skrifar Skoðun Konur sem stinga hvor aðra í bakið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkleiki Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Það er list að lifa með krabbameini Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Um kynjafræði og pólítík Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun 112. liðurinn í aðgerðaáætlun í menntamálum? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar Skoðun Konur á örorku Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Drambið okkar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Við vitum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Ekki sama hvaðan gott kemur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Börn í meðferð eiga rétt á fagfólki orð duga ekki lengur! Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Greindarskerðing eða ofurgáfur með gervigreind Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Sjá meira
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar
Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar
Skoðun Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun