Framfarakóngur NBA-deildarinnar mætir Íslandi 31. ágúst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2017 13:15 Hinn 2,11 metra hái Giannis Antetokounmpo hefur blómstrað eftir að hann var gerður að leikstjórnanda. vísir/getty
Tveir leikmenn Milwaukee Bucks fóru heim með verðlaun af verðlaunahátíð NBA-deildarinnar sem var haldin í gær. Malcolm Brogdon var valinn nýliði ársins og Giannis Antetokounmpo framfarakóngur ársins. Sá síðarnefndi er grískur landsliðsmaður og verður í eldlínunni þegar Ísland og Grikkland mætast á EM í körfubolta í Helsinki 31. ágúst næstkomandi. Antetokounmpo blómstraði á síðasta tímabili eftir að Jason Kidd, þjálfari Milwaukee, færði hann í stöðu leikstjórnanda. Hinn 2,11 metra hái Antetokounmpo hækkaði sig í öllum tölfræðiþáttum frá árinu á undan og bætti auk þess skotnýtinguna sína. Gríska undrið var með 22,9 stig að meðaltali í leik, 8,8 fráköst, 5,4 stoðsendingar, 1,9 varin skot og 1,6 stolna bolta á síðasta tímabili. Á þarsíðasta tímabili var Antetokounmpo með 16,9 stig, 7,7 fráköst, 4,3 stoðsendingar, 1,4 varin skot og 1,2 stolna bolta í leik. Hann bætti sig því umtalsvert á milli ára.Russell Westbrook var valinn verðmætasti leikmaður tímabilsins (MVP) en hann náði þeim einstaka árangri að vera með þrefalda tvennu að meðaltali í leik. Draymond Green, leikmaður meistara Golden State Warriors, var valinn besti varnarmaðurinn. Mike D'Antoni, þjálfari Houston Rockets, var valinn þjálfari ársins og lærisveinn hans, Eric Gordon, besti sjötti leikmaðurinn.
NBA Tengdar fréttir Westbrook hreppti hnossið Russell Westbrook var útnefndur verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í nótt. 27. júní 2017 07:38 Mest lesið Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Fótbolti Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Már klessti á bakkann og HM er í hættu Sport Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Enski boltinn Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fótbolti Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Fótbolti Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Enski boltinn Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Fótbolti Í beinni: ÍA - KR | Skagamenn stefna á að hefna sín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Sjá meira
Westbrook hreppti hnossið Russell Westbrook var útnefndur verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í nótt. 27. júní 2017 07:38