Háskólinn á Bifröst selur eignir til að bregðast við fækkun í staðnámi Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2017 16:04 Háskólinn á Bifröst. Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst ætlar að selja Hótel Bifröst, sem er í eigu skólans, og aðrar húseignir í opnu söluferli. Hótelið hefur verið í rekstri frá árinu 2013 og því tilheyra 51 herbergi í dag auk veitingasalar í rekstri. Þessu fylgja tvær byggingar með samtals 48 íbúðum. Þá er einnig til sölu að fjölbýlishús á svæðinu með alls 88 herbergjum. Í boði er að kaupa eignirnar að hluta eða öllu leyti og eru þær verðmetnar á 1,5 til 2,5 milljarða króna eftir því hversu stóran skammt er að ræða. Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að eignirnar séu til sölu þar sem fækkun hefur orðið í staðnámi hjá skólanum og því ekki sama þörf og áður fyrir húsnæði á svæðinu. Um áttatíu prósent af nemendum skólans eru í fjarnámi og koma í sérstakar staðarlotur yfir helgi einu sinni í mánuði. „Nokkur áhugi hefur þegar verið sýndur á eignum skólans og gangi salan upp í samræmi við áætlanir skólans mun það gera okkur kleift að greiða stóran hluta skulda okkar. Það mun hafa gríðarlega jákvæð áhrif á fjárhagsstöðu skólans. Kennslan við Háskólann á Bifröst byggist á fjarnámi en staðnám er einnig í boði. Undanfarin ár hefur staðnemum fækkað og íbúðir og herbergi því verið lítið nýtt. Þess vegna hófum við hótelrekstur árið 2013 sem gekk vel en núna er von okkar að öflugur aðili taki við keflinu og haldi uppbyggingunni áfram svo við getum einbeitt okkur að rekstri skólans,“ segir Vilhjálmur Birgisson, rektor Háskólans á Bifröst, um málið í tilkynningu.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira