Stelpurnar fá nú jafnglæsilegan bikar og strákarnir | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2017 12:30 Nýi bikarinn afhjúpaður í dag. Vísir/Eyþór
Úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna í körfubolta er að fara að hefjast og KKÍ hélt í dag kynningarfund með fjölmiðlum og þeim fjórum liðum sem taka þátt í úrslitakeppninni í ár. Snæfell, Keflavík, Skallagrímur og Stjarnan komust í úrslitakeppnina í ár. Snæfell og Keflavík hafa verið fastagestir á þessu stærsta sviði kvennakörfunnar undanfarin ár en þetta er aftur á móti í fyrsta sinn sem lið Skallagríms og Stjörnunnar taka þátt í úrslitakeppni kvenna í körfubolta. Á blaðamannafundinum var einnig kynntur nýr og glæsilegur bikar sem stelpurnar spila um í fyrsta sinn í þessari úrslitakeppni sem hefst strax eftir helgi. Þetta er fjórði bikarinn sem stelpurnar spila um frá því að strákarnir fengu sinn bikar fyrir þremur áratugum og hafði verið spilað um nýjasta kvennabikarinn, KLM-Íslandsbikarinn, frá árinu 2011. Nýi bikarinn hjá konunum er eftirmynd hins glæsilega karlabikars. Strákarnir hafa spilað um Sindra-Stál bikarinn frá árinu 1987 en nú hafa stelpurnar einnig fengið jafnglæsilegan bikar og strákarnir. Nýi bikarinn var til sýnis á blaðamannafundinum í dag og löngunin í Íslandsmeistaratitilinn var örugglega ekkert minni hjá stelpunum við að sjá nýja bikarinn á blaðamannafundinum í dag.Vísir/EyþórHannes S. Jónsson, formaður KKÍ, með nýja Íslandsbikarinn í kvennakörfunni. Vísir/Eyþór
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Sýna puttann til stuðnings Kane Grindavík - Tindastóll | Geta orðið Íslandsmeistarar Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Sjá meira