Grindvíkingar fullkomnuðu endurkomuna í uppbótartímanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2017 20:40 Grindvíkingar fagna marki síðasta sumar. Vísir/Hanna
Grindvíkingar fóru burtu með öll þrjú stigin frá Eimskipsvellinum í Laugardalnum í kvöld eftir að hafa unnið 3-2 endurkomusigur á heimamönnum í Þrótti í Lengjubikar karla í fótbolta. Þróttarar voru 2-1 yfir þegar fimmtán mínútur voru eftir gestirnir úr Grindavík jöfnuðu metin á 77. mínútu og tryggðu sér síðan sigur í uppbótartíma. Bandaríkjamaðurinn William Daniels skoraði sigurmarkið á fyrstu mínútu uppbótartímans eftir að Alexander Veigar Þórarinsson hafði jafnað metin í 2-2 á 77. mínútu. Grindvíkingurinn Andri Rúnar Bjarnason skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu strax á fimmtu mínútu en jafnaði fyrir Þrótt aðeins sex mínútum síðar. Aron Dagur Heiðarsson kom Þrótti í 2-1 á 67. mínútu og þannig var staðan þar til endurkoma Grindvíkinga hófst þrettán mínútum fyrir leikslok. Lærisveinar Óla Stefáns Flóventssonar hjá Grindvík hafa þar með náð í 10 stig af 12 mögulegum í fyrstu fjórum leikjum sínum og alls skorað í þeim 12 mörk eða þrjú mörk að meðaltali í leik. Þetta skilar liðinu í toppsæti 4 riðils á betri markatölu en Stjarnan. William Daniels hefur skorað 4 mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum í Lengjubikarnum í ár og Alexander Veigar Þórarinsson er með þrjú mörk. Þróttur hefur tapað þremur af fjórum leikjum sínum og markatalan er sex mörk í mínus eða 6-12.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti „Heilt yfir var ég bara sáttur“ Fótbolti Einkunnir íslensku stelpnanna: Cecilía best en liðið betra manni færri Fótbolti Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef „Eitt það versta sem ég hef séð síðustu ár“ „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Ætla skrefinu lengra: „Menn muna þá tilfinningu vel“ Skellihlegið í Stúkunni: Svipuð nærvera og þegar Bjössi hitti Karabatic í Lindex Stúkan: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði? Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Uppgjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Sjá meira