Björgólfur ekki í framboði til formanns SA Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 7. mars 2017 17:21 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir tímabært að nýr aðili taki við keflinu. vísir/gva
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, hyggst ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku Samtaka atvinnulífsins, en hann hefur verið formaður samtakanna síðastliðin fjögur ár. Nýr formaður verður kjörinn í lok mánaðarins. Björgólfur segist á vef samtakanna ekki hafa ætlað sér að gegna formennsku lengur en í þrjú ár. Nú séu þau orðin fjögur og því rétt að nýr aðili taki við keflinu. „Ég vil þakka öllum þeim sem ég hef starfað með á vettvangi SA, stjórnarfólki og starfsfólki samtakanna og aðildarfélögum fyrir stuðninginn. Einnig vil ég þakka forsvarsfólki samtaka launþega fyrir traust og gefandi samstarf á undanförnum árum,“ segir Björgólfur.Eyjólfur Árni Rafnsson.samtök atvinnulífsinsEyjólfur Árni Rafnsson, sem setið hefur í stjórn SA frá 2014 og í framkvæmdastjórn síðastliðið ár, hefur lýst yfir framboði. Hann hefur jafnframt átt sæti í stjórn Samtaka iðnaðarins frá árinu 2014 og verið varaformaður SI. Eyjólfur er húsasmiður að mennt og lauk síðar doktorsnámi í byggingaverkfræði. Hann var forstjóri Mannvits hf og forvera þess félags í tólf ár til ársloka 2015. Frá 2016 hefur Eyjólfur Árni sinnt ýmsum ráðgjafa- og stjórnunarstöðum, að því er segir á vef SA. Ný formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA þann 29. mars næstkomandi með rafrænni kosningu meðal aðildarfyrirtækja samtakanna.
Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira