Tinni var bestur Elín Albertsdóttir skrifar 20. desember 2016 09:00 Það eru nokkrar jólabækur sem d. Gunni vill í jólapakkann. MYND/GVA
Dr. Gunni sem er bæði tónlistarmaður og poppsérfræðingur segist ekki vera mikið jólabarn. „Ég læt það nú alveg vera, en konan mín er mikið jólabarn og ég smitast af því. Mér finnst reyndar þessi tími alveg frábær, nema kannski músíkin sem fylgir þessu.“ Lestu margar bækur um jólin? „Já, ætli ég renni ekki í eina eða tvær. Það eru reyndar stutt jól núna fyrir vinnandi fólk svo kannski verður þetta bara ein bók í ár.“ Hver er skemmtilegasta jólabók sem þú hefur lesið og af hverju? „Ég man nú ekki eftir neinni „jólabók“, það er bók um jólin, en þegar ég var ungur fékk ég alltaf nýjustu Tinna-bækurnar. Þær eru bestar.“ Hvaða bók langar þig að fá í jólagjöf um þessi jól? „Ég er spenntur fyrir nýju smásagnasafni Steinars Braga, en einnig fyrir æviþáttum Bjartmars og nýju Stefáns Mána-sögunni. Ég er líka spenntur fyrir nýju Einars Kárasonar-bókinni, sem mér skilst að sé eins konar framhald af „Stormur“ sem var alveg frábær saga.“
Jól Bókmenntir Mest lesið Míkrófónninn eftirminnilegasta jólagjöfin: „Ég ætlaði alltaf að verða söng- og leikkona“ Jól Ómissandi hefðir listamanna á aðventunni Jól Jólamolar: Pizzaofn efstur á óskalistanum Jól Framandi en fljótlegir smáréttir um jólin Jól Borðuðu jólamatinn klukkan níu gjörsamlega búin á því Jól Matthías Tryggvi flytur jólahugvekju Jól Sá sem gaf Gumma Kíró gönguskó í jólagjöf hefði átt að vita betur Jól Aðventan með Lindu Ben: Sörur og gjafaöskjur Jól Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben Jól Lína langsokkur bakar og skreytir Jól