Fundu muni sem hylltu ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 17. ágúst 2016 21:59 Lögregluþjónar að störfum í Eisenhuettenstadt í dag. Vísir/AFP
Lögregluþjónar fundu sprengjugerðarefni og tæki í íbúð manns sem var handtekinn í bænum Eisenhuettenstadt í dag. Þar fundust einnig munir sem „hylla Íslamska ríkinu“ samkvæmt lögreglunni. Auk þess fannst gasgríma, gervi-riffill og fleira. Maðurinn sem var handtekinn er 27 ára gamall Þjóðverji sem segist hafa tekið upp Íslam fyrir um sjö árum síðan. Hann er góðkunningi lögreglunnar og hefur margsinnis verið handtekinn vegna glæpa sem tengjast fíkniefnum, samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Fyrr í dag bárust fregnir af því að maðurinn hafi ætlað að gera árás á hátíðarhöld í bænum í haust. Lögreglan segir það hins vegar ekki liggja fyrir. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í dag að flóttafólk væri ekki að flytja hryðjuverk til Þýskalands. Hún sagði Íslam eiga heima í Þýskalandi svo lengi sem trúin væri iðkuð í takti við stjórnarskrá landsins. Meira en milljón manns flúðu til Þýskalands í fyrra og hefur andrúmsloftið breyst verulega á undanförnum misserum. Nokkrar árásir hafa verið gerðar þar í landi og þar af þrjár af flótta- og farandfólki samkvæmt frétt Guardian. Íslamska ríkið hefur eignað sér tvær af þeim. Ánægja með störf Merkel og stefnur hennar í málefnum flóttafólks hefur farið snarlega minnkandi. Hún sagði hins vegar að talið væri að rúmlega 800 Þjóðverjar hefðu ferðast til Sýrlands og Írak til að ganga til liðs við vígahópa. Hryðjuverk hefðu verið vandamál um árabil.
Mið-Austurlönd Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Heldur fullum launum Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Erlent Arndís Soffía tekur við af Grími Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Fleiri fréttir Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Sarkozy laus úr fangelsi Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Sjá meira