Strákarnir fylgdu eftir sigrinum á Rússum með sigri á Eistlandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 17. júlí 2016 18:10 Pétur Birgisson var einn af betri leikstjórnendum deildarinnar á síðustu leiktíð. Vísir/Anton
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum undir 20 ára aldri vann annan leikinn í röð á EM U20 sem fer fram í Grikklandi í dag 75-72 en íslenska liðið leiddi allt frá fyrsta leikhluta. Eistneska liðið byrjaði leikinn betur og leiddi fyrstu mínútur leiksins en eftir því sem leið á fyrsta leikhluta tókst strákunum að ná betri tökum á leiknum. Íslensku strákarnir héldu áfram að stjórna leiknum þrátt fyrir að verða undir í frákastabaráttunni og leiddu 45-37 í hálfleik. Íslenska liðið hélt góðu forskoti í þriðja leikhluta og tók þrettán stiga forskot inn í lokaleikhlutann en eistnesku leikmennirnir voru ekki á því að gefast upp. Eistneska liðið náði að herða varnarleikinn í lokaleikhlutanum og minnka forskotið niður í tvö stig en tíminn reyndist of naumur og fögnuðu strákarnir naumum sigri að lokum. Pétur Birgisson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 19 stig en Kári Jónsson bætti við 14 stigum. Íslenska liðið varð undir í frákastabaráttunni 33-55 undir körfunni en vann það upp með aðeins tíu töpuðum boltum og fimmtán stolnum. Ísland leikur lokaleik sinn í riðlinum á miðvikudaginn þegar liðið mætir Póllandi en íslenska liðið er í toppsæti B-riðilsins eins og staðan er núna.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti