Andlitslyfting Audi A6 og A7 Finnur Thorlacius skrifar 22. apríl 2016 14:52 Andlitslyftur Audi A6 í nýjum Matador Red lit.
Audi A7 hefur verið óbreyttur frá því hann kom fyrst á markað árið 2010, en nú er komið að andlitslyftingu hans og það á einnig við A6 bílinn sem hefur verið óbreyttur frá árinu 2011. Bílarnir fá nýjan framenda þar sem svart plastið í grillinu er matt og loftinntök fá krómumgjörð. Audi mun bjóða báða bílana í þremur nýjum litum, Java Brown, Matador Red og Gotland Green og það á einnig við um kraftaútgáfurnar S6 og S7. Jawa Brown liturinn var reyndar áður fáanlegur í Audi A6 Allroad. Audi A6 mun fást með tveimur nýjum felgugerðum og A7 með þremur nýjum felgugerðum. Audi A6 Allroad mun bjóðast í einum nýjum lit, Soho Brown og mun bíllinn standa á nýjum 20 tommu álfelgum. Þá verður hægt að fá hann nú með nýjum sportsætum með Valcona leðri. Ný LED lýsing í innanrýminu verður í A6 og A7 bílunum og finna má Apple Car Play og Android Auto stillingar á aðgerðaskjánum á miðju mælaborði bílanna. Andlitslyftu gerðir A6 og A7 fara á markað á innan tíðar og munu ekki kosta meira en núverandi gerðir þeirra.Audi A7 eftir andlitslyftingu.Audi A6 sedan eftir andlitslyftingu.
Mest lesið Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Erlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent