Jerome Hill í tapliði í 62 prósent leikja sinna í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2016 10:00 Jerome Hill lék með Gardner-Webb háskólaliðinu. Vísir/Getty
Jerome Hill og félagar í Keflavík eru lentir 1-0 undir á móti Tindastól í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta eftir tap á heimavelli í gærkvöldi. Jerome Hill var með 15 stig og 8 fráköst í leiknum í gær en var 12 í mínus í plús og mínus. Keflavík vann þær þrettán mínútur sem hann spilaði ekki með tveimur stigum. Myron Dempsey spilaði jafnmikið og Hill en skoraði sextán stigum meira en forveri sinn í Tindastólsliðinu. Jerome Hill komst oft lítið áleiðis á móti Myron Dempsey og ekki var hann heldur að ráða við hann í vörninni enda nýtti Dempsey 67 prósent skota sinna í gær. Þetta tap þýðir að sigurhlutfall Hill á Íslandi lækkar enn. Hann hefur nú verið í tapliði í 62 prósent leikja sinna í sumar eða 13 af 21. Sigurleikirnir eru því aðeins átta talsins til þessa. Keflavík og Tindastóll eru bæði með miklu betra sigurhlutfall án Jerome Hill en með hann innanborðs á Íslandsmótinu í vetur. Jerome Hill fagnaði aðeins sigri í 8 af 20 leikjum sínum í deildarkeppninni og hefur nú tapað fyrsta leiknum í úrslitakeppninni. Tindastóll vann alla níu leiki sína án Hill í deildinni. Keflavík vann 12 af 15 leikjum sínum með Earl Brown Jr. en aðeins 3 af 7 leikjum sínum eftir að Hill fór að spila með liðinu.Munurinn á sigurhlutfallinu eru nú 50 prósent eftir úrslitin í gær:Lið með Jerome Hill í Domino´s deildinni 2015-16 [sigrar-töp] Keflavík 3-5 Tindastóll 5-8Samanlagt: 8-13 (38 prósent)Án Jerome Hill í Domino´s deildinni 2015-16 [sigrar-töp] Keflavík 12-3 Tindastóll 10-0Samanlagt: 22-3 (88 prósent)
Dominos-deild karla Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Íslenski boltinn Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Fótbolti Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira