Logi Geirs: „Sláðu einhvern utanundir og spurðu hvað ertu að fokking gera“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. janúar 2016 20:35 Snorri Steinn svekktur í hálfleik eftir væna útreið. vísir/valli „
Þetta er vægast sagt vandræðalegt,“ sagði reiður Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og silfurdrengur, í EM-stofu RÚV í hálfleik í leik Íslands og Króatíu. Strákarnir okkar fengu vænan skell í fyrri hálfleik gegn króatíska liðinu og voru tíu mörkum undir eftir 15 mínútur, 13-3. Króatar voru svo níu mörkum yfir í hálfleik, 19-10.Sjá einnig:Þjóðarsorg á Twitter eftir útreiðina í fyrri hálfleik „Ég spurði mig að því þegar ég sá hvernig liðinu var stillt upp af hverju Snorri væri ekki í byrjunarliðinu. Ekki að það skipti öllu máli, en hann er einn besti sóknarmaður heims á móti 3-2-1-vörn,“ sagði Logi. „Þegar hann kom inn á fór leikurinn í allt annað jafnvægi og hann breyttist alveg.“ Logi var heldur alls ekki hrifinn af leikhléum Arons Kristjánssonar, en landsliðsþjálfarinn tók tvö slík í fyrri hálfleik og var mjög málefnalegur í þeim. „Þessi leikhlé hjá Aroni. Sláðu í borðið. Sláðu einhvern utanundir og spurðu: „Hvað ertu að fokking gera?“ Það er verið að segja mönnum að láta boltann ganga því þetta kemur og eitthvað svona. Maður yrði trylltur. Það er verið að hrauna yfir okkur,“ sagði Logi Geirsson. Hægt er að fylgjast með seinni hálfleiknum hér.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ Fótbolti Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Fótbolti Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Fótbolti Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Sport Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Fleiri fréttir Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Rut bætist í stóran hóp sem kvatt hefur landsliðið „Einvígi sem hefur verið magnað að taka þátt í“ Viðar Símonarson látinn Sjá meira