Fullyrti að rannsókn hefði farið fram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. janúar 2016 07:00 Karl Steinar Valsson neitaði að tjá sig um málið í samtali við fréttastofu þegar umfjöllunarefnið var borið undir hann. Vísir/Ernir
Karl Steinar Valsson, sem gegndi stöðu yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu frá 2007 til 2014, var endurtekið upplýstur um grunsemdir í garð vel tengds lögreglufulltrúa hjá deildinni. Málið er annað tveggja sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum. Í hinu málinu var lögreglumaður hjá fíkniefnadeild í gæsluvarðhaldi frá því fyrir áramót og þangað til í gær. Sá sem hér er til umfjöllunar hefur verið hærra settur innan lögreglu og með titil lögreglufulltrúa. Karl Steinar tilkynnti samstarfsmönnum mannsins að mál hans hefðu verið rannsökuð og ásakanir ættu við engin rök að styðjast. Engin rannsókn fór þó fram.vísir/gva Þrisvar sinnum færður til í starfi á nokkrum mánuðum Ásakanirnar þrálátu á hendur lögreglufulltrúanum voru aldrei rannsakaðar af Ríkissaksóknara. Þangað ber að vísa slíkum málum vakni grunur um brot í starfi. Engu að síður tilkynnti Karl Steinar samstarfsmönnum mannsins að ásakanirnar hefðu verið rannsakaðar. Maðurinn er enn við störf hjá lögreglu og hefur aldrei verið vikið frá störfum. Aðeins færður til á milli deilda. Svo alvarlegar voru ásakanirnar að samstarfsmenn töldu annað en ómögulegt að málin yrðu tekin til formlegrar rannsóknar. Svo fór ekki og er lögreglufulltrúinn enn við störf hjá lögreglu. Hann hefur hins vegar endurtekið verið færður á milli deilda undanfarna mánuði, alls þrisvar sinnum, samstarfsmönnum sínum til mikillar furðu. Þeir telja ótækt að komi upp slíkar ásakanir á hendur mönnum að slíkt sé ekki rannsakað til að komast að hinu rétta. Brotahópar í fíkniefnaheiminum geta haft mikinn hag af upplýsingum úr röðum lögreglu. Vísir/GVA Fulltrúi Íslands hjá Europol Karl Steinar lét af embætti yfirmanns fíkniefnadeildar í febrúar 2014 eftir sjö ára starf og hefur síðan verið búsettur í Hollandi. Þar gegnir hann stöðu tengifulltrúa Íslands hjá Evrópsku lögregluskrifstofunni, Europol. Í tíð hans sem yfirmanns fíkniefnadeildar bárust endurtekið ábendingar, bæði frá samstarfsmönnum sem og almenningi, þess efnis að umræddur lögreglufulltrúi væri í samstarfi við glæpamenn. Samstarf Karls Steinars við lögreglufulltrúann mun hafa verið afar náið og þeir náð sérstaklega vel saman. Vísir/Ernir Sagði ásakanir ekki á rökum reistar Í eitt skiptið þar sem ásakanir á hendur lögreglufulltrúanum höfðu verið sérstaklega háværar fullyrti Karl Steinar við fjölmennan hóp undirmanna sinna og samstarfsmanna lögreglufulltrúans að rannsókn hefði farið fram á ásökununum. Þær væru ekki á rökum reistar. Menn ættu ekki að ræða málið frekar. Vísir hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að engin formleg rannsókn fór fram þrátt fyrir fullyrðingar Karls Steinars. Hvers lags rannsókn það var sem Karl Steinar upplýsti undirmenn sýna um að fram hefði farið á ásökunum á hendur lögreglumanninum er ómögulegt að segja. Samstarf Karls Steinars við lögreglufulltrúann mun hafa verið afar náið og þeir náð sérstaklega vel saman. Karl Steinar vildi ekki tjá sig um málið þegar blaðamaður bar umfjöllunarefni fréttarinnar undir hann. Kim Kliver, yfirlögregluþjónn hjá dönsku lögreglunni, segir ámælisvert að lögreglumaðurinn hafi gegnt yfirmannsstöðu hjá fíkniefnadeild og upplýsingadeild. Þá eigi lögregla aldrei að rannsaka sig sjálfa.Skjáskot af vef tv2lorry.dk Óþekkt fyrirkomulag á Norðurlöndum Kim Kliver, rannsóknarlögreglumaður og yfirlögregluþjónn hjá dönsku lögreglunni, segir reglurnar afar skýrar í Danmörku hvað varðar þegar upp koma ásakanir á hendur lögreglumönnum. Hið sama gildi í Noregi og Svíþjóð. Sjálfstæð og óháð deild taki slík mál til skoðunar. „Ef einhver sakar lögreglumann um refsivert athæfi eða leka innan lögreglu þá tekur óháður saksóknari málið til skoðunar. Lögregla rannsakar aldrei ásakanir á sjálfa sig,“ segir Kliver í samtali við Vísi. Það komi skýrt fram í dönskum lögum að öllum athugasemdum skuli um leið vísa áfram til saksóknara. Fyrrnefndur lögreglufulltrúi gegndi á sama tíma yfirmannsstöðu hjá upplýsingadeild og fíkniefnadeild lögreglu. Fyrirkomulagið þykir gagnrýnisvert og þekkist ekki í nágrannalöndum okkar að sögn Kliver. Sami maður á aldrei að hafa yfirsýn yfir uppljóstrara, sem í mörgum tilfellum tengjast fíkniefnamálum, og um leið stýra rannsóknum í fíkniefnamálum. Rétt er að taka fram að Vísir leitaði til Kliver sökum þess að afar erfitt hefur reynst að fá svör frá yfirmönnum í íslensku lögreglunni undanfarnar vikur og mánuði í tengslum við málið. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segist ekki geta tjáð sig um málið. Heimildir Vísis herma að málið sé enn ekki komið til rannsóknar hjá embættinu.Vísir/stefán Samstarfsmenn fengu nóg Um mitt síðasta ár ofbauð samstarfsmönnum lögreglufulltrúans. Gengu sumir svo langt að hóta því að segja upp yrði ekkert gert vegna ásakananna. Var lögreglufulltrúinn í kjölfarið færður til starfa í deild ótengda rannsóknum á fíkniefnamálum. Eftir nokkra mánuði í því starfi var hann svo færður í deild sem sér um símhlustanir en starfsmenn í þeirri deild hafa aðgang að upplýsingum um hvaða meintu afbrotamenn verið er að hlera hverju sinni. Í mörgum tilfellum er um aðila að ræða sem fíkniefnadeild hefur til rannsóknar. Samstarfsmönnunum var brugðið og þótti ákvörðunin um þá tilfærslu óskiljanleg. Nýlega, eftir umfjöllun Vísis um málefni lögreglufulltrúans og einstaka stöðu hans sem yfirmanns í deildunum tveimur, var lögreglufulltrúinn svo enn á ný færður til og er nú við störf hjá tæknideild lögreglu. Ríkissaksóknari hefur enn sem komið er ekki hafið rannsókn á meintum brotum lögreglufulltrúans í starfi. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur sagst ekki geta tjáð sig um mál lögreglufulltrúans.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Leki í röðum lögreglu: Lögreglumaðurinn færður í símhlustanir Urgur er í röðum lögreglu vegna ákvörðunarinnar í ljósi þess um hvað mál lögreglumannsins snýst. Ákvörðunin sé með ólíkindum. 31. desember 2015 11:45 Grunaður um leka: Gegndi yfirmannsstöðu hjá upplýsinga- og fíkniefnadeild á sama tíma Afar óeðlilegt er að sami maður gegni báðum stöðum að sögn yfirmanns í dönsku lögreglunni. 21. desember 2015 11:30 Starfsmanni hjá lögreglu vikið frá störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Umræddur starfsmaður meðal annars í aðstöðu til þess að hafa áhrif á rannsóknir stórra fíkniefnamála. 14. desember 2015 10:45 Tjá sig ekki um ástæður þess að lögreglumaðurinn var færður til í starfi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, svarar engum spurningum vegna lögreglumanns á höfuðborgarsvæðinu sem var færður til í starfi vegna gruns um leka á upplýsingum. 14. desember 2015 15:00 Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira
Leki í röðum lögreglu: Lögreglumaðurinn færður í símhlustanir Urgur er í röðum lögreglu vegna ákvörðunarinnar í ljósi þess um hvað mál lögreglumannsins snýst. Ákvörðunin sé með ólíkindum. 31. desember 2015 11:45
Grunaður um leka: Gegndi yfirmannsstöðu hjá upplýsinga- og fíkniefnadeild á sama tíma Afar óeðlilegt er að sami maður gegni báðum stöðum að sögn yfirmanns í dönsku lögreglunni. 21. desember 2015 11:30
Starfsmanni hjá lögreglu vikið frá störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Umræddur starfsmaður meðal annars í aðstöðu til þess að hafa áhrif á rannsóknir stórra fíkniefnamála. 14. desember 2015 10:45
Tjá sig ekki um ástæður þess að lögreglumaðurinn var færður til í starfi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, svarar engum spurningum vegna lögreglumanns á höfuðborgarsvæðinu sem var færður til í starfi vegna gruns um leka á upplýsingum. 14. desember 2015 15:00