Heildarútgjöldin námu 320 milljörðum Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. ágúst 2015 07:00 Þegar Bjarni Benediktsson kynnti fjárlagafrumvarpið lagði hann áherslu á að það yrði hallalaust. vísir/gva
Heildarútgjöld ríkissjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins voru innan fjárheimilda, að því er fram kemur í ársfjórðungsuppgjöri. Meirihluti fjárlagaliða er innan fjárheimilda á fyrstu sex mánuðum ársins. Heildarútgjöldin námu 319,7 milljörðum króna á tímabilinu og voru 104 milljónum innan heimildar. Samtals eru 233 fjárlagaliðir með útgjöld innan heimilda ársins. 123 fjárlagaliðir eru með útgjöld umfram fjárheimildir ársins en hjá meirihluta þeirra er hallinn innan við 10 milljónir króna, eða samtals 233 milljónir. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að gert sé ráð fyrir að flestir þessara liða verði innan heimilda í árslok. Stærstur hluti umframútgjalda skýrist af fáum liðum en af 15 stærstu umframútgjaldaliðum fara þrír liðir samtals 4,7 milljarða króna fram úr fjárheimildum. Þar á meðal eru Sjúkratryggingar og Vegagerðin. Ráðuneyti bera hvert um sig ábyrgð á því að dreifing fjárheimilda innan ársins sé sem næst áætlaðri dreifingu raunútgjalda og er lögð áhersla á að ráðuneyti yfirfari vandlega dreifingu fjárheimilda innan ársins á þeim liðum sem undir þau heyra. Þegar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarpið síðasta haust lagði hann áherslu á það markmið að fjárlög yrðu hallalaus, en gert yrði ráð fyrir 4,1 milljarðs króna afgangi. Til að sá árangur náist er mikilvægt að heildarútgjöld verði áfram innan heimilda á seinni árshelmingi.
Fjárlagafrumvarp 2016 Mest lesið „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ Atvinnulíf „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Atvinnulíf Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Viðskipti innlent Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Viðskipti innlent Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Viðskipti innlent Breytingar á stjórn Sýnar Viðskipti innlent Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Viðskipti erlent Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Viðskipti innlent Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur Viðskipti erlent Nói Siríus aftur í innlendri eigu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Atvinnuleysi 7,1 prósent í febrúar Verðbólga eykst enn Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Lindex opnar þar sem Next var áður Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Norðurál getur keypt meiri orku af Landsvirkjun Magnús Örn til Fossa Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Landsbankinn hækkar einnig vexti Sjá meira