Hvítþvottur skóskúrka Jakob Frímann Magnússon skrifar 19. febrúar 2015 07:00 Fram undan er Hönnunarmars með tilheyrandi tískusýningum og upplifunum í miðborginni þar sem Reykjavik Fashion Festival ber hæst. Fyrirtæki á vettvangi tísku og hönnunar hafa komið og farið í tímans rás. Nokkur hafa lifað af og dafnað frá ári til árs þrátt fyrir veikburða stoðkerfi hönnunar á Íslandi. Eitt þeirra fyrirtækja sem hafa staðið sig hvað best og náð umtalsverðum árangri á alþjóðavettvangi er fyrirtæki hjónanna Hugrúnar Árnadóttur og Magna Þorsteinssonar, KronKron. KronKron hefur starfað í miðborginni í um 15 ára skeið við vaxandi vinsældir. Vöxturinn hefur byggt á fyrirtakshönnun og gæðum, skynsamlegum og aðhaldssömum rekstri og varfærni í illfyrirsjáanlegum heimi íslenskra viðskipta. Vörur fyrirtækisins hafa verið seldar í um hundrað löndum. Á undanförnum misserum hefur fyrirtækið heldur betur vakið athygli með því að vera ítrekað boðin þátttaka í alþjóðlegum stórviðburðum á borð við Emmys, MTV Awards, American Music Awards, Hollywood Film Awards og Golden Globe.Afsláttur boðinn af ónýtri vöru Í hinum skreipa heimi árstíðabundinnar tískuvöru skiptir sköpum að varan skili sér með óaðfinnanlegum hætti á viðkomandi markað innan settra tímamarka. Samansafn vel útfærðra smáatriða og fágunar hefur einkennt tískuhönnun KronKron um árabil og hvers kyns frávik eða slökun á gæðakröfum getur hæglega orðið banabiti tískuhönnunarfyrirtækis af þessum toga. Mikilvæg sending frá spænskum skóframleiðanda KronKron reyndist alvarlega gölluð árið 2011 og gerði fyrirtækið strax athugasemdir og hafnaði umræddri pöntun. Framleiðandinn lét eins og um smámál væri að ræða, krafðist tafarlausrar greiðslu en bauð 20% afslátt í ljósi hinna augljósu galla og slufsulega frágangs. KronKron hafnaði því alfarið að taka umrædda gallagripi til sölu og dreifingar, jafnvel þótt 20% afsláttur byðist. Það er þekkt að metnaðarfullt tísku- og hönnunarfyrirtæki gefur engan afslátt af gæðakröfum sínum og metnaði og lætur ekki hyskni framleiðenda stjórna eigin för.Óprúttnir gripdeildarmenn Hinir óprúttnu spænsku skóframleiðendur og umbjóðendur þeirra þrjóskuðust við. Á svipuðum tíma tóku að berast ábendingar að utan um að skór KronKron væru til sölu hjá verslunum og keðjum sem hvergi sá stað í viðskiptamannaskrám fyrirtækisins. Eigendur KronKron neituðu lengi vel að trúa slíku upp á samstarfsaðila fyrirtækisins um margra ára skeið. Sannleikurinn kom þó um síðir í ljós: Hinir óprúttnu erlendu viðsemjendur KronKron höfðu sjálfir stundað að selja vörur undir merkjum KronKron – án minnstu vitundar fyrirtækisins og í augljósu trássi við þær sérverslanir og keðjur sem fyrirtækið hafði ræktað sambönd við um árabil. Hér má augljóst vera að framinn hefur verið alvarlegur glæpur með einbeittum brotavilja; höfundarréttur ekki virtur og vöru dreift í nafni KronKron án vitundar eða samráðs við fyrirtækið, hönnuði þess og eigendur. Vægast sagt vítaverð og refsiverð framganga, en viti menn! Þau undur og stórmerki áttu sér stað fyrir skemmstu að sjálfur Hæstiréttur Íslands dæmdi spænsku skúrkunum í vil og það með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir hið smáa en glæsilega íslenska tískufyrirtæki! Sýndi þar æðsti dómstóll landsins að hann hefur lítinn skilning á verðmæti hágæðavöru sem haldin er galla eða þá á eðli hönnunar. Meðhöndlaði Hæstiréttur því málið líkt og þar væri um að ræða hvern annan sandpoka, sem tæki verðbreytingum eftir því hversu vel heppnaður sandpokinn væri. Dómurinn undirstrikar einnig hversu lítillar verndar hönnuðir njóta og hversu takmörkuð úrræði þeirra eru þegar á þeim er brotið. Getur virkilega verið svo komið að höfundarréttur sé að engu hafður, t.a.m. sökum þess að viðvarandi höfundarréttarbrot gagnvart listafólki á netinu eru iðulega látin afskiptalaus af yfirvöldum? Hvernig getur mönnum daprast dómgreind og réttlætiskennd með svo augljósum hætti? Viljum við gera Ísland að alþjóðlegu skúrkaskjóli með blessun íslenskra dómstóla í bak og fyrir? Skyldi dómur sem þessi geta orðið fordæmisgefandi? Sé svo, ber þeim sem hér á landi starfa að sköpun að hugsa alvarlega sinn gang og hvort sætt sé lengur eða stætt á Íslandi. Í tilviki KronKron hljóta að vera hverfandi líkur á að fyrirtækið geti, eftir slíkt reiðarslag, orðið sú víðfleyga skrautfjöður á Hönnunarmars eða Reykjavík Fashion Festival sem til stóð að það yrði og maklegt var. Framtíð þessa frábæra fyrirtækis hlýtur að vera í alvarlegu uppnámi eftir kostnaðarsama réttlætis- og varnarbaráttu fyrir dómstólum – sem engu skilaði nema enn verri skaða og óvæntri sneypu. Fyrirhuguð þátttaka fyrirtækisins og eigenda þess í framtíðarþróun og markaðssetningu íslenskrar hönnunar og tísku hefur verið teflt í dapurlega tvísýnu, algjörlega að ófyrirsynju. Mikil eftirsjá yrði að jafn glæsilegu fyrirtæki og KronKron úr miðborginni. Ekki síður af akri hinna skapandi greina þar sem íslensk tískuhönnun hefur um árabil leikið veigamikið hlutverk í markaðssetningu og ímyndarsköpun Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Golden Globes HönnunarMars Jakob Frímann Magnússon RFF Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar