Nornahraun heldur áfram að þykkna svavar hávarðsson skrifar 28. janúar 2015 07:00 Þykknar jafnt og þétt eftir að dregur úr eldgosinu í Holuhrauni. Mynd/gropedersen
Sýnileg virkni í eldstöðinni í Holuhrauni var með minnsta móti þegar vísindamenn dvöldu norðan Vatnajökuls við mælingar í liðinni viku. Ýtarlegar mælingar á hrauninu úr lofti á tímabilinu 30. desember til 21. janúar sýna að hraunið hefur þykknað mikið á þessum þremur vikum. Rúmmál þess er nú orðið 1,4 rúmkílómetrar. Hraunrennslið á meðan mælingarnar stóðu yfir var tæplega hundrað rúmmetrar á sekúndu. Eins og komið hefur fram dregur því hægt úr ákafa gossins en vonast er til að hægt verði að mæla stærð hraunsins á ný seinna í þessari viku og fást þá nýjar tölur um hraunflæðið. Mikil jarðskjálftavirkni er enn í Bárðarbungu. Alls hafa mælst um 150 skjálftar í Bárðarbungu frá því á föstudag þar til í gær. Ekki hefur mælst skjálfti yfir 5,0 að stærð frá 8. janúar. Í kvikuganginum hafa mælst um 50 skjálftar frá því á föstudag. Flestir skjálftanna eru undir 1,0 að stærð. GPS-mælingar við norðurjaðar Vatnajökuls sýna áframhaldandi hægar færslur í átt að Bárðarbungu. Enn dregur þó úr hraða samdráttarins.
Bárðarbunga Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fleiri fréttir Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Sjá meira